Tónlist

Seinasta plata Nirvana endurútgefin

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Nirvana á Live and Loud-tónleikum MTV. Frá vinstri: Kurt Cobain, Dave Grohl og Krist Novoselic.
Nirvana á Live and Loud-tónleikum MTV. Frá vinstri: Kurt Cobain, Dave Grohl og Krist Novoselic. mynd/getty
Senn eru liðin 20 ár frá dauða Kurts Cobain, söngvara, gítarleikara og lagasmið hljómsveitarinnar Nirvana. Þann 8. apríl 1994 fannst hann látinn á heimili sínu í borginni Seattle og er talið að hann hafi fyrirfarið sér þremur dögum áður. Gruggarar um víða veröld syrgðu þennan vinsæla tónlistarmann og fljótlega fóru samsæriskenningar að skjóta upp kollinum.

Það er viðbúið að andlátsins verði minnst með einhverjum hætti næsta vor, en nú þegar hefur verið tilkynnt um endurútgáfu plötunnar In Utero í haust. Platan var þriðja og síðasta hljóðversplata Nirvana og kom út 13. september 1993.

Upptökustjórn var í höndum hávaðaseggsins Steve Albini og þótti hljómurinn heldur groddalegri en á stjarnfræðilega vinsælum forveranum, plötunni Nevermind. Hljómsveitinni fannst sem pönkaðar lagasmíðarnar hefðu slípast fullmikið í höndum upptökustjórans Butch Vig, en hann hafði dregið fram poppuðustu og melódískustu hliðar sveitarinnar fram á Nevermind.

Hljómsveitarmeðlimir voru hins vegar tvístígandi eftir að upptökum lauk og á síðustu stundu voru nokkur lög endurhljóðblönduð og heildarhljómurinn mýktur örlítið, þrátt fyrir mótbárur Albinis.

Hráleikinn var þó enn til staðar og gagnrýnendur voru yfir sig hrifnir af In Utero. Fjölmargir aðdáendur sveitarinnar telja plötuna þá bestu sem hún gaf út, og að á henni hafi Nirvana fullkomnað hljóm sinn.

Afmælisútgáfan kemur út þann 24. september og inniheldur þrjá geisladiska og einn DVD-disk. Platan verður þar bæði í upprunalegri og í endurhljómjafnaðri útgáfu, ásamt endurhljóðblönduðum tilraunaupptökum (demóum) og hinum frægu en áður ófáanlegu Live and Loud-tónleikum MTV í heild sinni.

Harmsaga söngvara

Nirvana fylgdi In Utero eftir með tónleikaferðalagi um Bandaríkin í október. Að því loknu fór sveitin til Evrópu en þurfti að aflýsa ferðalaginu í byrjun marsmánaðar 1994 eftir að Cobain tók of stóran skammt af Rohypnoli í Róm og lenti á spítala.

Þann 18. mars kallaði eiginkona Cobains, Courtney Love, eftir aðstoð lögreglu á heimili þeirra hjóna. Cobain var í sjálfsvígshugleiðingum og hafði læst sig inni í herbergi með byssu. Hann samþykkti í kjölfarið að fara í meðferð, en lét sig hverfa af meðferðarheimilinu 1. apríl og spurðist ekkert til hans fyrr en hann fannst látinn á heimili sínu viku síðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×