Sport

Jói töltkóngur | Myndasyrpa

Mynd/Rut Sigurðardóttir
Jóhann R. Skúlason og Hnokki frá Fellskoti urðu í dag heimsmeistarar í tölti á HM íslenska hestsins í Berlín.

Jóhann og Hnokki fengu 9,61 í einkunn fyrir yfirferðartöltið en þeir fengu tíu í einkunn hjá fjórum dómurum af fimm. Þeir félagar fengu 9,20 í einkunni í forkeppninni en bættu um betur í úrslitum.

Þetta er sjötti sigur Jóhanns Rúnars í tölti á heimsmeistaramóti og tíundi sigur hans í heildina.

Rut Sigurðardóttir, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, fylgdist með Jóhanni og Hnokka í Berlín í morgun. Myndirnar má sjá í flettiglugganum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×