Sport

Búið að ákæra Hernandez fyrir morð

Hernandez fer hér af heimili sínu í handjárnum. Þangað fer hann ekki á næstunni.
Hernandez fer hér af heimili sínu í handjárnum. Þangað fer hann ekki á næstunni.
Aaron Hernandez, fyrrum leikmaður New England Patriots í NFL-deildinni, var í gær ákærður fyrir morð. Hann var einnig ákærður fyrir vörslu ólöglegra skotvopna.

Hinn 23 ára Hernandez er sakaður um að hafa myrt hinn 27 ára gamla Odin Lloyd. Sá var að slá sér upp með systur kærustu Hernandez. Líkið fannst skammt frá heimili leikmannsins fyrrverandi.

Hernandez hefur lýst því yfir að hann sé saklaus. Hann á ekki möguleika á því að yfirgefa fangelsið meðan á réttarhöldunum stendur.

"Fólk hefur verið ótrúlega fljótt að dæma í þessu máli en saksóknari hefur ekki næg sönnunargögn til þess að sanna mál sitt," sagði lögmaður Hernandez í gær.

Málið á eftir að verða fyrirferðamikið í fjölmiðlum næstu mánuði.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×