Lyfið er ekki lengur til hér á landi Svavar Hávarðsson skrifar 4. mars 2013 06:00 Tugþúsundir Íslendinga voru bólusettir með Pandemrix gegn svínaflensu. fréttablaðið/vilhelm
Rannsókn í Englandi hefur leitt í ljós marktækt samband á milli bólusetningar gegn svínainflúensu með bóluefninu Pandemrix og drómasýki [taugasjúkdómur sem veldur svefntruflunum] hjá börnum og unglingum. Frá þessu var greint í vísindatímaritinu British Medical Journal á dögunum, að því segir í frétt frá Landlæknisembættinu. Áður hafa birst niðurstöður um marktækt samband í þessum aldurshópum í Finnlandi og Svíþjóð en ekki í öðrum löndum. Á Íslandi hefur ekki sést marktækt samband á milli bólusetningar með Pandemrix og drómasýki. Spurður um afstöðu til bólusetninga með lyfinu Pandemrix segir Haraldur Briem sóttvarnalæknir að hún sé óbreytt enn sem komið er. „Við fylgjum tilmælum Lyfjastofnunar ESB þess efnis að Pandemrix-bóluefnið sé ekki notað hjá ungu fólki gegn svínainflúensu nema að alvarlegur faraldur ríði yfir og annað bóluefni sé ekki fáanlegt. Það þarf að fara fram áhættumat," segir Haraldur. Bóluefnið Pandemrix er ekki lengur til hér á landi. Það bóluefni sem nú er notað gegn svínainflúensu og öðrum stofnum inflúensu er af annarri gerð og hefur ekki verið bendlað við drómasýki, að sögn Haraldar.
Mest lesið Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Erlent Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Erlent „Þú veist að ég er sú sem að passar best hérna inn“ Innlent „Ég fæ ekki séð hvaða rugl þetta er“ Innlent „Kurr í greininni í dag um að þetta skuli hvort tveggja vera á matseðlinum“ Innlent „Ég veit að þér mun sömuleiðis líða vel hér“ Innlent Fyrsti læknirinn í heilbrigðisráðuneytinu Innlent Yfirgaf jólatónleika í sjúkrabíl Innlent „Ein allra besta jólagjöfin“ Innlent Færeyingar fagna tvennum göngum Erlent Fleiri fréttir Segir Helga Magnús óhæfan til að gegna embættinu „Þannig að jólin komu snemma hjá mér“ „Ég fæ ekki séð hvaða rugl þetta er“ Fyrsti læknirinn í heilbrigðisráðuneytinu Það bráðvantar börn á leikskólann á Hvanneyri „Þú veist að ég er sú sem að passar best hérna inn“ „Ein allra besta jólagjöfin“ „Ég veit að þér mun sömuleiðis líða vel hér“ Skortur á sjúkragæslu á viðburðum hafi áhrif á neyðarþjónustu Eftirliti á viðburðum ábótavant og skynsemi í orkumálum Vegir víða hálir á morgun og blint á fjallvegum Stjórnarleiðtogar sitja fyrir svörum á Sprengisandi „Afskaplega róleg“ nótt hjá lögreglumönnum Þakklæti, auðmýkt, rok og söngur ríkisstjórnarinnar „Kurr í greininni í dag um að þetta skuli hvort tveggja vera á matseðlinum“ Breytingar á ráðuneytum taka ekki gildi fyrr en í mars Mest skreytta jólahúsið í Hveragerði Yfirgaf jólatónleika í sjúkrabíl Ný ríkisstjórn Íslands: „Við erum orðnar vinkonur“ Allt um nýja ríkisstjórn Íslands í kvöldfréttum Krónan muni veikjast og allir halda að sér höndum Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB eigi síðar en 2027 „Mjög þunn súpa, lítið í henni“ Ætla að fjölga lögreglumönnum verulega Vilja ekki plast eða vír á leiðisskreytingar í kirkjugörðum Þetta eru ráðherrar nýrrar ríkisstjórnar Allir punktar stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar Kallar eftir stillingu: „Menn eru saklausir uns sekt er sönnuð!“ Full tilhlökkunar að taka við nýju ráðuneyti „Það verður unnið fyrir heimilin í landinu“ Sjá meira