Interstellar, ný kvikmynd Hollywood leikstjórans Christopher Nolan, verður að stórum hluta tekin upp hér á landi. Von er á leikurum og aðstandendum myndarinnar hingað til lands um helgina.
Ísland hefur að undanförnu verið vinsæll tökustaður fyrir erlendar stórmyndir og sjónvarpsþætti, en í því samhengi má nefna Oblivion, Prometheus, Thor: The Dark World og Game of Thrones. Ekkert lát virðist vera á þessum vinsældum en samkvæmt umfjöllun kvikmyndavefsins Empire mun landið vera aðaltökustaður Interstellar sem er ný mynd Hollywood leikstjórans Christopher Nolan.
Samkvæmt heimildum fréttastofu lendir einkaflugvél á Reykjavíkurflugvelli næstkomandi laugardag, en í henni verða leikarar og aðstandendur myndarinnar.
Leikaraliðið er ekki af verri endanum en Matt Damon, Anne Hathaway, Michael Caine, Jessica Chastain og Matthew McConaughey eru þar á meðal og hafa myndir birst af þeim tveimur síðastnefndu við tökur.
Hér á landi verður myndin tekin upp við Kirkjubæjarklaustur, en mikil leynd hvílir yfir söguþræði hennar. Þó er vitað að hún á að gerast í framtíðinni þar sem korn er það eina sem hægt er að rækta. Vísindamenn halda því af stað í leiðangur til annara vídda í leit að öðrum nytjaplöntum til ræktunar.
