Bíó og sjónvarp

Hafþór Júlíus í stóru hlutverki í Game of Thrones

Kristján Hjálmarsson skrifar
Hafþór Júlíus Björnsson á að leika Gregor Clegane í næstu þáttaröð.
Hafþór Júlíus Björnsson á að leika Gregor Clegane í næstu þáttaröð.
Kraftajötuninn Hafþór Júlíus Björnsson mun fara með nokkuð stórt hlutverk í fjórðu seríunni af Game of Thrones þáttunum sem sýndir eru á Stöð 2.

Hafþór Júlíus, sem lenti í þriðja sæti í keppninni Sterkasti maður heims sem fram fór í Kína í lok síðasta mánaðar, tilkynnti þetta á Facebooksíðu sinni.

„Það gleður mig að geta loksisn tilkynnt facebook vinum mínum það að ég sé í tökum hjá Game Of Thrones! Ég mun leika THE MOUNTAIN í 4 þáttaröð,“ segir Hafþór Júlíus á Facebooksíðu sinni.

Í þáttunum gengur Gregor Clegane gjarnan undir nafninu The Mountain, en hann er höfuð Clegane-ættarinnar frá Westerland. Gregor er eldri bróðir Sandor Clegane en þeir elda grátt silfur saman. Þegar bræðurnir voru ungir hélt Gregor höfði bróður síns að opnum eldi með þeim afleiðingum að hann brann illa í framan

Gregor leikur stórt hluverk í sögunni en hann er ótrúlega stór og mjög vöðvastæltur. Upphaflega fór Conan Stevens með hlutverk Gregors en svo tók Ian Whyte við. Nú er röðin komin að Hafþóri Júlíusi að túlka tröllkarlinn og ætti hann að henta vel í hlutverkið enda engin smásmíði.

Bandarískar síður sem sérhæfa sig í umfjöllun um þættina hafa einnig fjallað um hlutverk íslenska kraftajötunsins.

Það er skammt stórra högga á milli hjá Hafþóri Júlíusi því auk þess að keppa í Sterkasti maður heims kom fram á Vísi í sumar að Jim Irsay, eigandi NFL-liðsins Indianapolis Colts, hefði áhuga á því fá hann til liðs við ruðningsliðið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.