Tónlist

Gítarhetja kastar kveðju á Íslendinga

Freyr Bjarnason skrifar
Þrefaldi Grammy-verðlaunahafinn og einn mesti gítarsnillingur rokksögunnar Steve Vai kastar kveðju á Íslendinga í nýju myndbandi. Hann  heldur tónleika í Silfurbergi í Hörpu föstudaginn 11. október.

Hinn 53 ára Vai hefur á ferli sínum spilað með Frank Zappa, Public Image Ltd., David Lee Roth og Whitesnake, auk þess að starfrækja eigin sólóferil.

Hann er þessa dagana á tónleikaferð um Evrópu til að fylgja eftir sinni áttundu hljóðversplötu og þeirri fyrstu í sjö ár, The Story of Light.

Miðasala er  hafin á midi.is og harpa.is og í síma 5285050. Nokkrir VIP-miðar verða í boði fyrir þá sem vilja hitta gítarsnillinginn fyrir tónleika og sjá hann í hljóðprufu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.