Sport

Stuðningsmenn Jaguars fá frían bjór

Þessi stuðningsmaður Jaguars er ánægður með þetta nýja útspil félagsins.
Þessi stuðningsmaður Jaguars er ánægður með þetta nýja útspil félagsins.
Lið Jacksonville Jaguars er brandaralið NFL-deildarinnar. Liðið getur ekkert og spá margir því að liðið vinni ekki leik í vetur.

Það hefur verið á brattann að sækja hjá Jacksonville undanfarin ár og liðið er enn eina ferðina að byggja upp nýtt lið.

Stemningin fyrir liðinu í Jacksonville er ekkert sérstaklega mikil og aðsókn á leiki ein sú versta í deildinni.

Forráðamenn félagsins hafa því ákveðið að gera sitt besta til þess að draga fólk á völlinn. Aðferðin er klassísk og virkar oftar en ekki. Hún er að gefa fólki frían bjór.

Þeir sem kaupa sæti á ákveðnum stöðum á vellinum munu fá tvo fría bjóra með miðanum sínum. Verður áhugavert að sjá hvort þessi aðferð dugi til þess að fylla völlinn.



NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×