Tónlist

"Klikkuð" plata frá Beyoncé

Pharrell Williams er að taka upp nýjustu plötu Beyoncé.
Pharrell Williams er að taka upp nýjustu plötu Beyoncé. nordicphotos/getty
Pharrell Williams er að vinna við nýju plötuna hennar Beyoncé og segir að hún klárist innan skamms.

Upptökstjórinn og popparinn segir að nýju lögin séu "klikkuð" en bætti við að söngkonan sendi ekki frá sér nýja tónlist nema hún sé hundrað prósent ánægð með hana.

"Platan frá B er klikkuð," sagði hann við Billboard. "Hún hefur mjög nákvæman smekk. Það er líklega þess vegna  sem hún er Beyoncé. Nafnið hennar er þekkt út um allan heim og það er risastórt. Það er vegna þess að hún hefur mjög nákvæman smekk og er ákveðin."

Williams var sjálfur mjög áberandi í sumar því hann söng lag Daft Punk, Get Lucky, og söng lagið Blurred Lines með Robin Thicke.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.