Leikjavísir

Seldu yfir milljón eintök af Playstation 4 á einum sólahring

Stefán Árni Pálsson skrifar
nordicphotos/epa
Sala á nýrri Playstation 4 leikjatölvu fór vel af stað í Bandaríkjunum um helgina en raftækjafyrirtækið Sony seldi yfir milljón tölvur fyrsta sólahringinn. Salan hófst föstudaginn 15. nóvember.

Um er að ræða nýtt met í sölu á leikjatölvum en Sony átti fyrra metið þegar fyrirtækið gaf út Playstation 3 árið 2006.

Microsoft, aðal samkeppnisaðili Sony, mun hefja sölu á nýrri leikjatölvu síðar í þessari viku þegar Xbox One fer í almenna sölu. Playstation 4 mun kosta 100 dollurum minna en XBox One.

„Salan fór betur af stað en við höfðum búist við,“ sagði Koki Shiraishi, sölustjóri Sony í samtali við erlenda fjölmiðla.

„Við erum samt sem áður mest að horfa til sölunnar fyrsta mánuðinn og hvernig okkur tekst til á þeim tíma.“

Sony mun hafa nægilega margar leikjatölvur á lager til að geta unað eftirspurn framyfir jól en talið er að fyrirtækið geti selt um fimm milljónir slíkar fyrir mars á næsta ári.

Sony seldi 197.000 Playstation 3 leikjatölvur  á fyrsta mánuðinum árið 2006 og því gefur að skilja að eftirspurnin eftir slíkum tölvum hefur aukist gríðarlega á síðustu árum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×