Lífið

Robin Thicke og Britney Spears saman?

SAMSETT MYND: AFP/NordicPhotos
Það er auðvelt að gleyma því að Robin Thicke, einn umtalaðasti tónlistarmaður heims um þessar mundir, hefur ekki alltaf átt jafn auðvelt með að fá umfjöllun.

Thicke er þrjátíu og sex ára gamall en hefur reynt við heimsfrægð síðan hann var ungur maður, með litlum árangri þar til nýlega.

En fyrir um tíu árum síðan, eftir að Britney Spears og Justin Timberlake hættu saman og áður en hún kynntist Kevin Federline, átti Robin Thicke í stuttu ástarsambandi við Spears, samkvæmt InTouch Weekly.

Hún var þá ein heitasta poppstjarna heims, en hann lítið sem ekkert þekktur.

Samkvæmt slúðurmiðlum vestanhafs neita talsmenn Thicke þessum orðrómi og segja hann aldrei hafa haldið framhjá kærastu sinni, leikkonunni Paulu Patton, sem hann er giftur í dag. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×