Innlent

Vinnupallur féll á bíl

Kristjana Arnarsdóttir skrifar
Björgunarsveitin var kölluð út á Bárugötu rétt fyrir kvöldmatarleytið í dag en þar hafði vinnupallur fokið til í óveðrinu og hafnað á bíl sem lagt var við götuna. Engin slys urðu á fólki.

Í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu segir að um 170 björgunarsveitarmenn hafi sinnt samanlagt um 100 verkefnum það sem af er dags. Flest þeirra voru á höfuðborgarsvæðinu eða um 51 talsins. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×