Fótbolti

Birkir skoraði í öruggum sigri á Emil og félögum

Birkir skorar hér mark sitt í kvöld.
Birkir skorar hér mark sitt í kvöld.
Landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason var á skotskónum ern Sampdoria sló Emil Hallfreðsson og félaga í Hellas Verona úr keppni í ítalska bikarnum.

Lokatölur 4-1 fyrir Sampdoria. Birkir kom Sampdoria í 2-0 með marki á 20. mínútu. Sampdoria er komið í átta liða úrslit keppninnar.

Birkir lék allan leikinn fyrir Sampdoria en Emil sat allan tímann á bekknum hjá Verona.

Félagar Birkis fagna með honum í kvöld.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×