Sannleikurinn: Hanna Birna segir af sér vegna leka Andri Þór Sturluson skrifar 16. desember 2013 08:46 Ráðuneyti sem lekur persónuupplýsingum viljandi í fjölmiðla ætti undir eðlilegum kringumstæðum að vera rannsakað.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, mun tilkynna Sigmundi Davíð, forsætisráðherra, afsögn sína í dag eftir að minnisblaði um málsmeðferð hælisleitanda var lekið til fjölmiðla í síðasta mánuði, að því virðist til að koma höggi á hann. Hanna Birna var kölluð fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd á þriðjudag vegna málsins. Að sögn fréttastofu ríkisútvarpsins gagnrýndu fulltrúar stjórnarandstöðuflokkanna Hönnu Birnu og innanríkisráðuneytið fyrir að hafa sagt ósatt þegar hún vísaði til þess að Útlendingastofnun, lögreglan og lögmaður hælisleitandans hafi haft umrædd gögn undir höndum en bæði Útlendingastofnun og ríkislögreglustjóri segjast aldrei hafa séð þessi gögn. Auk þess hafa svör innanríkisráðuneytisins verið þversagnarkennd, loðin og fyrirspurnir um hvernig stendur á því að persónuupplýsingum um hælisleitendur sé lekið í fjölmiðla voru hunsaðar. Þegar Hanna Birna viðurkenndi að hafa ekki skýrt rétt frá uppruna skjalsins og hvernig það komst í fjölmiðla lýsti meirihluti þingmanna því yfir að þeir treystu innanríkisráðherranum ekki lengur. Á Íslandi er það litið alvarlegum augum ef upp kemst að ráðherrar segi ekki satt.Harmar afsögnina Sigmundur Davíð forsætisráðherra kveðst harma það að Hanna Birna þyrfti að segja af sér. Það yrði eftirsjá að henni í ríkisstjórninni, en hún yrði að fara að leikreglum eins og aðrir.Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu þar sem í dag er því blákalt logið að íslenskur ráðherra hafi sömu sómakennd og danski dómsmálaráðherrann sem sagði af sér í seinustu viku fyrir að segja ekki rétt frá.
Harmageddon Mest lesið Hljómsveitin Queens of the Stone Age komin í pásu Harmageddon „Ef þú hefur ekki stjórn á sjálfum þér þá getur þú ekki stjórnað stórum vinnustað“ Harmageddon Kóngalífi fagnað í fríríkinu Kristjaníu um helgina Harmageddon Semja ný lög í sumarbústað Harmageddon Hljómsveitin Filter í viðtali við X-ið 977 Harmageddon Er endurkoma Oasis í kortunum? Harmageddon Grísalappalísa í miklu stuði Harmageddon Sannleikurinn: Vinsælustu folunum oftast skilað Harmageddon Keith Richards átrúnaðargoð Sveppa Harmageddon Rokkprófið - Aðalbjörn í Sólstöfum vs. Regína Ósk Harmageddon