Sport

Strákarnir kepptu í Trysil í dag

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Einar Kristinn og Magnús Finnsson í ásamt Jon Olsson, sigurvegara dagsins í Trysil
Einar Kristinn og Magnús Finnsson í ásamt Jon Olsson, sigurvegara dagsins í Trysil Mynd/Skíðasamband Íslands
Einar Kristinn Kristgeirsson, Magnús Finnsson og Sigurður Hauksson kepptu á stórsvigsmótum í Trysil í Noregi í dag.

Einar Kristinn hafnaði í 25. sæti í fyrra mótinu en fyrri ferð hans var sérstaklega góð. Hann var 61. í rásröðini en var í 24. sæti eftir fyrri ferðina. Hann fékk 55 FIS punkta fyrir árangur sinn sem er aðeins frá hans besta. Einar Kristinn lauk ekki keppni á síðara mótinu.

Unglingalandsliðsmaðurinn Magnús Finnsson hafnaði í 40. sæti í fyrra mótinu og fékk 93 FIS punkta. Hann lauk ekki keppni á síðara mótinu. Sigurður Hauksson var einnig á meðal þátttakenda á mótunum en tókst ekki að skila sér í mark.

Á morgun munu íslenskar skíðakonur keppa á tveimur stórsvigsmótum á sama stað. Hægt verður að fylgjast með gangi mála á mótunum hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×