Sport

Hver verður íþróttamaður ársins? Segðu þína skoðun

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Aron Pálmarsson er handhafi titilsins.
Aron Pálmarsson er handhafi titilsins. Mynd/Daníel
Íþróttaárið 2013 var mjög gott hjá íslensku íþróttafólki og í kvöld verða þeir sem sköruðu fram úr heiðraðir í hófi samtaka íþróttafréttamanna og ÍSÍ. Það fer fram í Gullhömrum og verður hófið sýnt í beinni útsendingu á RÚV.

Sitt sýnist hverjum um hver eigi verðlaunin skilin ár hvert. Hér að neðan má sjá þá tíu íþróttamenn sem koma til greina sem íþróttamaður ársins. Einnig má sjá þrjá efstu í kjöri á þjálfara ársins og liði ársins.

Segðu þína skoðun á því hver eigi verðlaun skilið í ár í ummælakerfinu hér að neðan.

Kjörið fór fyrst fram árið 1956 og þetta er því í 58. sinn sem Samtök íþróttafréttamanna velja íþróttamann ársins. 25 af 26 félögum í SÍ nýttu atkvæðisrétt sinn að þessu sinni.

Aron Pálmarsson var kjörinn íþróttamaður ársins í fyrra og hann er aftur á topp tíu listanum í ár. Félagi hans hjá Kiel, Guðjón Valur Sigurðsson, er einnig á topp tíu listanum en þeir eru einu íþróttamennirnir á lista ársins sem hafa hlotið útnefninguna íþróttamaður ársins áður.

Alfreð Gíslason var kjörinn þjálfari ársins í fyrra og hann kemur aftur til greina í ár.

Kvennalandsliðið í hópfimleikum var lið ársins 2012 og nú er kvennalið Gerplu tilnefnt ásamt knattspyrnulandsliðunum.

Þessir íþróttamenn eru tilnefndir sem íþróttamaður ársins árið 2013:

Alfreð Finnbogason, knattspyrna

Aníta Hinriksdóttir, frjálsar

Aron Pálmarsson, handbolti

Auðunn Jónsson, kraftlyftingar

Guðjón Valur Sigurðsson, handbolti

Gylfi Þór Sigurðsson, knattspyrna

Helgi Sveinsson, íþróttir fatlaðra

Jón Arnór Stefánsson, körfubolti

Kolbeinn Sigþórsson, knattspyrna

Sara Björk Gunnarsdóttir, knattspyrna

Tilnefningar í þjálfara ársins:

Alfreð Gíslason, handbolti

Gunnar Páll Jóakimsson, frjálsar

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, knattspyrna

Tilnefningar í lið ársins:

Knattspyrnulandslið karla

Knattspyrnulandslið kvenna

Kvennalið Gerplu í hópfimleikum




Fleiri fréttir

Sjá meira


×