Innlent

Hélt barnsmóður sinni og barni nauðugum á jólanótt

Sérsveit ríkislögreglustjóra yfirbugaði manninn í morgun eftir töluverð átök.
Sérsveit ríkislögreglustjóra yfirbugaði manninn í morgun eftir töluverð átök. Mynd/Vísir
Maður er grunaður um að hafa haldið barnsmóður sinni og eins árs gömlu barni þeirra nauðugum í íbúð í Mosfellsbænum síðastliðna nótt auk þess að hafa beitt konuna ofbeldi. Frá þessu greinir á vef Ríkisútvarpsins.

Sérsveit ríkislögreglustjóra handtók manninn undir morgun eftir mikil átök en konan komst undan snemma í morgun og gat þá fyrst kallað eftir aðstoð lögreglu. Maðurinn sem var gestkomandi í íbúð konunnar var vopnaður eggvopnum og hafði haft í hótunum við barnið, konuna og lögreglu þangað til sérsveitin yfirbugaði hann.

Ekki er vitað um líðan konunnar en barnið er komið aftur í umsjá fjölskyldu hennar. Maðurinn, sem er Íslendingur búsettur í Noregi, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald þangað til anna janúar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×