"Borgin er ekki að veita Bíó Paradís styrk“ Stefán Árni Pálsson skrifar 20. desember 2013 21:00 Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdarstjóri Heimili kvikmyndanna. „
Það er töluvert margt sem kemur fram í viðtalinu við Hrönn [Marinósdóttir, stjórnanda RIFF] sem er beinlínis rangt,“ segir Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdarstjóri Heimili kvikmyndanna, í samtali við Vísi. Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík eða RIFF, gagnrýndi styrki Menningar- og ferðamálaráðs til menningarmála fyrir næsta ár í viðtali við mbl.is fyrr í dag. Ráðið ákvað meðal annars að styrkja ekki Alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Reykjavík, RIFF, og frekar að veita Heimili kvikmyndanna átta milljón króna styrk til að halda sína kvikmyndahátíð. „Þetta kemur svo sem ekki á óvart. Alveg frá því að Besti flokkurinn tók við borginni hefur hann haft sérstakan áhuga á að halda lífinu í Bíó Paradís,“ sagði Hrönn Marinósdóttir í viðtalinu við mbl.is. „Í fyrsta lagi er borgin ekki að veita Bíó Paradís styrk til að halda alþjóða kvikmyndahátíð heldur Heimili kvikmyndanna sem er sjálfseignarstofnun sem rekur Bíó Paradís. Fagfélög kvikmyndagerðamanna hefur áður verið með kvikmyndahátíð sem er gömul og nú er verið að endurvekja gamla hátíð frá 1996, en undir þeim merkjum verður hátíðin haldin. Hátíð sem verður á vegum fagfélaga kvikmyndagerðamanna. Hið yfirlýsta markmið hátíðarinnar er að vinna sem sjálfseignarstofnun og rekstrarformið ekki í hagnaðarskyni,“ segir Hrönn Sveinsdóttir. „Ég get ekki svarað því af hverju RIFF fær ekki styrk en það er alls ekki Bíó Paradís sem er að fá þennan styrk heldur Heimili kvikmyndanna.“ „Það er óþarfi að ræða mál Bíó Paradís í þessu samhengi en ég get samt sagt að Bíó Paradís er ekki í rekstrarvanda eins og kemur fram í viðtalinu við Hrönn. Við erum með ársuppgjör sem sýna og sanna það. Okkar styrkhlutfall hefur verið innan við 16% af heildarveltu undanfarin ár en það hækkaði upp í um 25% á síðasta ári. Það var aðallega til að standa straum af þeim fjölmörgu skólasýningum, kennslustundum, menningarverkefnum, kvikmyndahátíðum og öllu öðru sem við bjóðum upp á. Í því samhengi er Bíó Paradís alls ekki að njóta einhverja yfirdrifinna styrkja. Þetta er innan við 25% af okkar heildarveltu. Ef forsvarsmaður RIFF ætlar að halda því fram að þetta sé eitthvað óeðlilegt þá ættu menn að skoða styrkhlutfall RIFF sem er örugglega tvöfalt meira“
Mest lesið Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Innlent Mættur í Samfylkinguna Innlent Færri ánægðir með Höllu en Guðna og Ólaf Ragnar Innlent Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Innlent Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Erlent Mennirnir tveir fundnir Innlent Ekkert gert til að gera nikótínpúða jafn óaðlaðandi og sígarettur Innlent Til skoðunar að beita refsisköttum á nikótínpúða Innlent Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Erlent Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Erlent Fleiri fréttir Hlaut varanlegan skaða vegna myglu en fær ekki krónu Marta hafnar því alfarið að hafa ítrekað sest í stól Hildar Unglingar á ofsahraða reyndu að stinga lögregluna af Mennirnir tveir fundnir Hólmfríður ætlar í ritara VG Til skoðunar að beita refsisköttum á nikótínpúða Malbika bílastæðin í Reynisfjöru Fluttur með þyrlu eftir bílveltu á Snæfellsnesi Ríkisstjórnin sameini það versta frá bæði vinstri og hægri „Íslenska vegakerfið er líklega hættulegasti ferðamannastaður landsins“ Starfshópur skipaður vegna slysa hjá ferðamönnum Veitingastaður ber ekki ábyrgð á hnefahöggi starfsmanns Má ekki eyða myndböndum sem mátti ekki taka Laxalúsin sækir í sig veðrið fyrir vestan Grunur um að fiskar úr landeldi hafi komist í sjó Færri ánægðir með Höllu en Guðna og Ólaf Ragnar Mættur í Samfylkinguna Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Ekkert gert til að gera nikótínpúða jafn óaðlaðandi og sígarettur Matvælastofnun kærði tvo búfjáreigendur til lögreglu Einn af 103 ökumönnum reyndist yfir mörkum Segir Vinstri græn ekki styðja frekari breytingar á útlendingalögum Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Samherjaskipstjórinn segir málinu ekki lokið Líklega verði flett ofan af fleirum í rannsókn á brotum Diddy Hvers vegna er skiltið í Kúrlandi svo hátt uppi? Rannsókn lögreglu haft kælingaráhrif á alla blaðamannastéttina Um 100 þúsund fjár slátrað á Selfossi Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Hamra járnið meðan það er heitt í mansalsmálum Sjá meira