Íslandsbanki tekur þátt í sambankaláni upp á 475 milljónir norskra króna, um níu milljarða íslenskra króna, til norska skipafélagsins Havila til að endurfjármagna fjögur skip félagsins sem þjónusta olíuiðnaðinn þar í landi.
Í fréttatilkynningu Íslandsbanka segir að SpareBank1 SMN í Noregi hafi verið umsjónaraðili lánsins. Þar segir einnig að Havila hafi verið stofnað árið 2003 og að samstæðan eigi 27 þjónustuskip. Havila sé með höfuðstöðvar í Fosnavaag Noregi og skrifstofur í Brasilíu og Asíu.
Vilhelm Már Þorsteinsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Íslandsbanka, segir í tilkynningunni að þátttaka bankans í láninu sé mikilvægt skref í að auka þátttöku hans í þjónustuiðnaði við olíu og gasleit á Norður-Atlantshafi.
„Íslandsbanki hefur getu til að lána til erlendra verkefna vegna sterkrar stöðu í erlendum gjaldeyri og styður þannig við frekari uppbyggingu íslenskra og erlendra fyrirtækja í atvinnugreinum þar sem bankinn hefur sérþekkingu,“ segir Vilhelm í tilkynningunni.
Þar má einnig finna ummæli Arne Johan Dale, fjármálastjóra Havila:
„Havila er mjög ánægt með samninginn og að eiga viðskipti á Íslandi.“
