Skoðun

Öflug stjórnarandstaða skilar árangri

Árni Páll Árnason skrifar
Ríkisstjórnin lagði fram furðulegt fjárlagafrumvarp síðastliðið haust. Sköttum var létt af þeim sem best voru í færum til að bera þá og tekna aflað með því að skera niður í heilbrigðisþjónustu, menntun, atvinnuþróun og rannsóknum. Framlög til ríkisstjórnarinnar sjálfrar voru hækkuð um 23%. Ný gjöld voru lögð á sjúklinga sem áttu að vera þeim mun hærri sem þeir þyrftu á lengri spítalavist að halda.

Í samningum við þinglok fékk stjórnarandstaðan samþykktar breytingar, sem skipta miklu máli. Við fengum samþykkt að sett yrði á fót nefnd fulltrúa allra flokka sem útfæri gjald á nýjar fisktegundir í íslenskri lögsögu, þannig að unnt verði að leggja sérstakt gjald á makrílúthlutun strax á næsta ári.

Við fengum sjúklingagjöldin burt.

Við fengum því framgengt með góðri samvinnu við verkalýðshreyfinguna að desemberuppbót yrði greidd.

Við fengum líka aukin framlög í ýmsa þróunar- og rannsóknasjóði og afnumið nýtt hámark á þeim þróunarkostnaði sem fyrirtæki geta fengið endurgreiddan. Þannig er hluta af aðför ríkisstjórnarinnar að rannsóknum og þróunarstarfi hrundið.

Við í Samfylkingunni lögðum líka til ítarlegar breytingatillögur við skattkerfisbreytingar ríkisstjórnarinnar, því tillögur hennar nýttust einvörðungu hinum best settu. Tillögur okkar voru samhljóða þeim hugmyndum sem ASÍ hafði sett fram. Ríkisstjórnin kaus engu að síður að lögfesta óréttlætið.

Aðilar vinnumarkaðarins reyndust hins vegar á sama máli og við í Samfylkingunni. Því var ríkisstjórninni stillt upp við vegg og hún knúin til að draga til baka dagsgamla lagasetningu og lagfæra hana í átt til þess sem tillaga Samfylkingarinnar hafði hljóðað upp á. Það var gaman að sjá barða ráðherra reyna að bera sig mannalega við þær aðstæður.

Niðurstaðan er því skárri en það frumvarp sem lagt var upp með, þótt ekki sé það gott.

Einbeittur vilji ríkisstjórnarinnar til að lækka skatta á ríkustu 10% þjóðarinnar og andstaða hennar við skattalækkun til lágtekjufólks er það sem helst veldur óróa á vinnumarkaði.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×