Tónlist

Aðalskrautfjöðrin er Sónar

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Margeir St. Ingólfsson Margeir er einn aðalskipuleggjenda Sónar Reykjavík. Þetta er í fyrsta sinn semn hann kemur fram á hátíðinni í Barcelona.
Margeir St. Ingólfsson Margeir er einn aðalskipuleggjenda Sónar Reykjavík. Þetta er í fyrsta sinn semn hann kemur fram á hátíðinni í Barcelona. Fréttablaðið/Stefán

Fjórar íslenskar hljómsveitir spila á einni virtustu tónlistarhátíð í Evrópu um helgina, Sonar í Barcelona. Ein þeirra er hljómsveitin Gluteus Maximus.

„Þetta er náttúrulega fyrst og fremst bara góð viðurkenning, að vera beðinn um að spila þarna,“ sagði Margeir Ingólfsson, betur þekktur sem Dj Margeir eða annar hluti tvíeykisins Gluteus Maximus. 



Hljómsveitina Gluteus Maximus skipa Stephan Stephensen og Dj Margeir.

„Það er Sónar sem er kannski einna helst horft til í raftónlist, danstónlist og framsækinni tónlist. Þetta er ein aðalskrautfjöðrin,“ sagði Margeir jafnframt.

Margeir er nýlentur frá Kaupmannahöfn en hann var fenginn til þess að spila á tónlistarhátíðinni Distortion þar í borg.

„Ég hef spilað á fullt af hátíðum og haft gaman á fullt af hátíðum en Sónar er alveg sérstök. Ég finn strax að þetta er farið að hafa áhrif, þótt maður passi sig alltaf að hafa ekki of miklar væntingar – það eru aðrar hátíðir sem horfa til Sónar og fagaðilar sem taka mark á Sónar, og maður fær strax aukna athygli. Fleiri læk á Facebook og svona,“ sagði Margeir brosandi.

„En Stebbi Bongó, sem er með mér í hljómsveitinni, spilar reyndar ekki á Sónar. Hann er með skútudellu á háu stigi og kemst ekki því hann er að sigla skútunni til Íslands. Ég stend vaktina á meðan í Barcelona, að spila undir berum himni í góðu veðri, það eru ekki mörg tækifæri sem maður fær til þess og ég er fullur tilhlökkunar,“ sagði Margeir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.