Gylfi: Vel gert hjá Ólafi Inga Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. nóvember 2013 22:11
Gylfi Þór Sigurðsson var bjartsýnn að loknum fyrri leiknum gegn Króatíu í umspili fyrir HM 2014 í Brasilíu. Leiknum lauk með markalausu jafntefli þrátt fyrir að Íslandi hafi misst mann af velli með rautt spjald snemma í síðari hálfleik. „Það var mjög mikilvægt að hafa náð að halda hreinu, sérstaklega miðað við að hafa misst Ólaf út af með rautt spjald. Nú verður útivallamarkið mjög dýrmætt,“ sagði Gylfi Þór en viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan. Hann hrósaði varnarleiknum, sérstaklega í seinni hálfleik, og er bjartsýnn fyrir leikinn í Zagreb á þriðjudaginn. „Sem betur fer erum við með nóg af góðum leikmönnum sem geta komið inn. Það var ekki leiðinlegt að fá Eið Smára inn af bekknum í kvöld og allir í hópnum fyrir utan byrjunarliðið eru klárir í að koma inn.“ Hann segir að það hafi verið erfitt að verjast í seinni hálfleik, enda yfirleitt með alla tíu mennina fyrir aftan boltann. „Síðan þegar við unnum boltann var enginn frammi til að spila á. En það jákvæða er að við náðum að halda hreinu þrátt fyrir að vera manni færri.“ Gylfi segir að rauða spjaldið sem Ólafur Ingi fékk hafi verið réttur dómur. „Hann var kominn í gegn og það sýndi reynslu hjá Óla að toga hann niður.“
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið „Getum gengið stoltar frá borði“ Handbolti Aron og Bjarki Már gerðu sitt í París Handbolti Hamrarnir héldu Refunum í fallsæti Enski boltinn Uppgjörið: Grótta - Haukar 21-31 | Haukar munu etja keppi við Fram í úrslitum Handbolti Hinn reynslumikli Stafford eftirsóttur Sport Magnaður Sigvaldi sökkti Magdeburg Handbolti „Settum í sjötta gír í seinni hálfleik“ Handbolti Bologna kom til baka gegn AC Milan Fótbolti „Viðurkenni að maður fékk fiðring í magann” Handbolti Fyrrverandi þingmaður tekur við formennsku hjá FH Handbolti Fleiri fréttir Hamrarnir héldu Refunum í fallsæti Bologna kom til baka gegn AC Milan Echeverri má loks spila fyrir Man City Valdi Laudrup besta fótboltamann sögunnar Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja „Þú ert að tengja þetta við Rashford“ Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Liverpool rak stjóra kvennaliðsins Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Vilja banna fullorðnum leikmönnum að nota barnalegghlífar Tekinn af velli eftir að hann fékk morðhótanir úr stúkunni Sektin hans Messi er leyndarmál Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Elísabet byrjar á tveimur töpum Orri og félagar þurfa að koma til baka á Santiago Bernabéu Komnir með þrettán stiga forskot Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Haaland sneri aftur og var hetjan Atli Sigurjóns framlengir við KR Darwin Núnez langt frá efstu mönnum í klúðruðum dauðafærum Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Tannvesen á Mbappé sem spilar ekki í kvöld Ronaldo sýndi óvænta óeigingirni Ótrúlegir taktar á æfingu hjá Pablo Punyed Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Allt annað en sáttur með Frey FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Sjá meira