Ákærðu enn við störf hjá Íslandsbanka Valur Grettisson skrifar 3. júlí 2013 11:25 Birkir Kristinsson starfar enn hjá Íslandsbanka.
Þeir Birkir Kristinsson og Elmar Svavarsson, starfa báðir enn hjá Íslandsbanka, þrátt fyrir að þeir hafi verið ákærðir ásamt tveimur öðrum mönnum, fyrir umboðssvik, markaðsmisnotkun og brot á lögum um ársreikninga í tengslum við 3,8 milljarða króna lánveitingu Glitnis til félags í eigu Birkis í nóvember árið 2007. Báðir störfuðu þeir einnig hjá Glitni þegar brotin áttu að hafa átt sér stað. Það var Fréttablaðið sem greindi fyrst frá málinu í morgun, en þar kom fram að auk Birkis og Elmars eru þeir Jóhannes Baldursson og Magnús Arnar Arngrímsson ákærðir í málinu. Í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu um málefni starfsmannanna, segir að bankinn geti ekki tjáð sig opinberlega um málefni einstakra starfsmanna. Samkvæmt reglum bankans eiga þó menn sem eru ákærðir í svona málum að fara í leyfi á meðan staða þeirra er metin og mál þeirra skýrast. Orðrétt segir svo í svari bankans: „Rétt er að benda á að gert er ráð fyrir því að bankinn geti á einhverjum tímapunkti endurskoðað afstöðu sína varðandi stöðu starfsmanna.“
Tengdar fréttir Fjórir ákærðir fyrir lán til Birkis Kristinssonar Sérstakur saksóknari hefur ákært Birki Kristinsson og þrjá aðra fyrrverandi starfsmenn Glitnis fyrir umboðssvik, markaðsmisnotkun og fleira. Ástæðan er 3,8 milljarða lán til félags í eigu Birkis til kaupa á bréfum í bankanum. 3. júlí 2013 07:00 Mest lesið Nefna fimm veitingastaði að baki „gervikjarasamningi“ Viðskipti innlent Sektuð fyrir að segjast vera best Neytendur Kilroy hafi veitt ferðamönnum rangar upplýsingar Neytendur Raforka til gagnavera snarminnkað Viðskipti innlent Gervigreindin sögð „bjargvættur“ jarðgassiðnaðarins Viðskipti erlent Að kúpla okkur frá vinnu um jólin Atvinnulíf Eldamennskan og jólaljósin algengasti brunavaldur um hátíðirnar Samstarf Þekktir netþrjótar réðust á kerfi Wise Viðskipti innlent Baldvin sagði upp 99 manns sem mættu ekki á morgunfund Viðskipti innlent Bölvað basl á Bond Viðskipti erlent Fleiri fréttir Nefna fimm veitingastaði að baki „gervikjarasamningi“ Raforka til gagnavera snarminnkað Þekktir netþrjótar réðust á kerfi Wise Discover hefur flug milli München og Íslands Hærri barnabætur og ný gjöld á nikótínvörur á nýju ári Hluthafarnir samþykkja samruna Marels við JBT Sekta þau sem ekki greiða rétt fargjald um fimmtán þúsund krónur Elma Sif til Stika Solutions Baldvin sagði upp 99 manns sem mættu ekki á morgunfund Standa vörð um bílastæði viðskiptavina Kringlunnar Vonar að allir pakkar berist til þeirra fyrir jól Kortleggja tómar íbúðir í samstarfi við sveitarfélög Jóna Björk tekur við Garðheimum Segja son og tengdadóttur Reynis ekki koma nálægt Mannlífskaupum EastJet flýgur til Basel og Lyon Margrét áfram rektor á Bifröst Ingibjörg Þórdís til Elko Fimm mætt í Kauphöllina RÚV sker sér stærri sneið af auglýsingakökunni Ársverðbólga óbreytt á milli mánaða Tómar íbúðir á landinu nú um 10 þúsund Keppinautar eigi ekki að opna bækur sínar hver gagnvart öðrum Segir kaupverðið á Mannlífi ekki hátt Hætta í stjórn vegna yfirvofandi kaupa á Mannlífi Heimkaup undir hatt Samkaupa Leggja nýjan jarðstreng til Súðavíkur Heimildin að ganga frá kaupum á Mannlífi Lykilstjórnendur fá skell vegna tugmilljóna hagnaðar Segir eðlilegar skýringar á hæsta raforkuverðinu Efling hafi líklega sett Íslandsmet í óhróðri Sjá meira
Fjórir ákærðir fyrir lán til Birkis Kristinssonar Sérstakur saksóknari hefur ákært Birki Kristinsson og þrjá aðra fyrrverandi starfsmenn Glitnis fyrir umboðssvik, markaðsmisnotkun og fleira. Ástæðan er 3,8 milljarða lán til félags í eigu Birkis til kaupa á bréfum í bankanum. 3. júlí 2013 07:00