Skoðun

Jöfnum stöðu leigjenda og kaupenda

Björk Vilhelmsdóttir skrifar
Eitt helsta kosningamál Samfylkingarinnar er að bæta stöðu leigjenda. Við viljum tryggja 2.000 nýjar leiguíbúðir á næsta kjörtímabili, að húsnæðisbætur tryggi jafngóðan stuðning fyrir þá sem leigja og þá sem kaupa og að útleiga á einni íbúð verði undanþegin fjármagnstekjuskatti og skerði ekki tekjur lífeyrisþega.

Um 25% húsnæðis eru leiguhúsnæði. Greiðslubyrði leigjenda er almennt mun meiri en greiðslubyrði þeirra sem eru í eigin húsnæði. Ástæðan er sú að vaxtabætur ná til stórs hluta íbúðareigenda og vaxtabætur ná að greiða allt upp í 50% af vaxtakostnaði af húsnæðislánum þeirra sem eru í lægstu tekjuhópunum. Það skýtur því skökku við að fjölmiðlar og flestir stjórnmálaflokkar haldi þeirri mynd á lofti að þeir einir séu umfjöllunarinnar virði sem „eiga“ eða öllu heldur skulda sitt íbúðarhúsnæði.

Hærri bætur til fleiri

Húsaleigubætur hafa hingað til náð einungis til þeirra allra tekjulægstu. Það breyttist þó talsvert um síðustu áramót. Tekjuskerðingar vegna húsaleigubóta eru nú mun minni en áður og sambærilegar við útreikning vaxtabóta. Því eiga fleiri nú rétt á húsaleigubótum en áður. Húsaleigubæturnar munu hækka tvisvar á þessu ári.

Þetta er sá árangur sem Samfylkingin hefur náð á þessu kjörtímabili. En af hverju var þetta kjörtímabil ekki notað til að klára dæmið og koma á fullu jafnrétti milli leigjenda og eigenda?

Það er nú það. Húsnæðisstefnu og húsnæðismarkaði er ekki hægt að breyta skyndilega. Það er flókið verkefni og verður aldrei leyst nema í sæmilegri sátt allra flokka og ekki síður í góðri sátt við aðila vinnumarkaðarins og hagsmunahópa þeirra sem verst eru settir á húsnæðismarkaði.

Ekki má fórna eignum fólks, og skyndilegt og stóraukið fjármagn til leigumarkaðar yrði, án undirbúnings, væntanlega til að sprengja upp leiguverð og eyðileggja möguleika á traustum almennum leigumarkaði.

Kjörtímabilið nýtti Samfylkingin í að ná þverpólitískri sátt um húsnæðisstefnu til framtíðar. Samfylkingin trúir nefnilega ekki á töfralausnir sem skapa óstöðuglega og kollsteypur fyrir fólk sem á betra skilið.

Stefnumótunin tókst vel og hún liggur nú fyrir. Loforð Samfylkingarinnar um 2.000 nýjar leiguíbúðir og sömu húsnæðisbætur fyrir leigjendur og kaupendur byggja meðal annars á henni. Sex starfshópar hafa skilað niðurstöðum um nauðsynlegar breytingar á lögum, skattaumhverfi og bótakerfi.

Húsnæðisáætlanir, breyting á þjóðskrá og fleiri nauðsynlegar aðgerðir hafa einnig verið undirbúnar. Hægt er að kynna sér þessi og önnur atriði stefnumótunarinnar á vef velferðarráðuneytisins.

Samfylkingin hefur nýtt kjörtímabilið til að leggja grunninn að breytingum og varanlegum umbótum á leigumarkaði. Þeim verður hægt að hrinda í framkvæmd á næstu árum.

Það skiptir þess vegna miklu máli fyrir þau 25% þjóðarinnar sem búa í leiguhúsnæði að Samfylkingin fái stuðninginn sem hún þarf til að halda áfram að bæta stöðu leigjenda og jafna rétt kaupenda og leigjenda á næstu árum.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×