Tónlist

Anda að sér ómenguðu kántríi

Freyr Bjarnason skrifar
„Það verður gaman að koma þarna og anda að okkur ómenguðu kántríi,“ segir Bragi Valdimar Skúlason Baggalútur.

Hljómsveitin flýgur í dag til Nashville, höfuðborgar sveitatónlistarinnar. Þar dvelur hún í eina viku við upptökur á næstu plötu sinni sem er væntanleg fyrir jól.

Spurður hvort um hreinræktaða kántríplötu sé að ræða segir Bragi það því miður óumflýjanlegt. „Við biðjumst velvirðingar á því fyrir fram en þetta verður þjóðmenningarlegt kántrí.“

Baggalúti til halds og trausts við upptökurnar verða hljóðversspilarar sem hafa áður unnið með sveitinni. „Þetta samstarf byrjaði þegar okkur vantaði sjúklega hratt banjó á fyrstu plötuna, Pabbi þarf að vinna. Hann Ilya Toshinsky, sem er íþróttamaður á banjó, kemur og verður með okkur. Við munum setja upp hattana og bóna sporana og það verður fírað upp í blágresinu.“

Aðspurður hvort eingöngu frumsamin lög verði á plötunni segir Bragi kankvís: „Það hefur verið stefnan hjá okkur. Við stelum bara á jólunum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.