Tónlist

Nýtt lag frá Lay Low

Lay Low
Lay Low Fréttablaðið/Stefán
Tónlistarkonan Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, betur þekkt sem Lay Low, hefur sent frá sér nýtt lag. Lagið heitir Gently og er fyrsta smáskífan af væntanlegri breiðskífu tónlistarkonunar sem kemur út 15. nóvember næstkomandi.

Lay Low hefur unnið að upptökum og upptökustjórn sjálf en fékk breska upptökustjórann Ian Grimble til að vinna að hljóðblöndun plötunnar. Ian þessi hefur starfað með listamönnum á borð við Daughter, Beth Orton, Manic Street Preachers og Travis.

Fyrsta smáskífulagið, Gently, gefur tóninn fyrir nýju plötuna en hún ber nafnið Talking About the Weather og inniheldur 11 lög. 

Talking About the Weather verður fjórða breiðskífa Lay Low en hún hefur áður sent frá sér Please Don't Hate Me, Farewell Good Night’s Sleep og nú síðast Brostinn Streng árið 2011.

Lay Low sendi reyndar frá sér tónleikaplötu fyrr á árinu frá tónleikum sem hún streymdi beint frá stofunni heima hjá sér. Sú útgáfa markaði jafnframt upphafið að nýju samstarfi milli hennar og plötuútgáfunnar Record Records.

Lay Low kemur fram með nýrri hljómsveit á Iceland Airwaves hátíðinni í vikunni en þar kemur hún fram tvisvar sinnum: miðvikudaginn 30. nóvember í Hörpu (Kaldalón) á miðnætti og í Hörpu (Norðurljós) fimmtudaginn 31 okt kl. 20:50, auk þess að spila á off-venue tónleikum yfir helgina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.