Tónlist

Íslendingar tilnefndir til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Barrokksveitin Nordic Affect.
Barrokksveitin Nordic Affect. fréttablaðið/anton
„Þetta er mikill heiður fyrir okkur og það er mjög gaman að þessu,“ segir Eyþór Gunnarsson hljómborðsleikari fusion-hljómsveitarinnar Mezzoforte, sem er ásamt barrokk-sveitinni Nordic Affect tilnefnd til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs í ár.

Verðlaunin verða afhent í Óperuhúsinu í Osló í Noregi 30. október næstkomandi. „Þetta eru líklega stærstu tónlistarverðlaunin í okkar heimshluta,“ segir Eyþór um verðlaunin.

Eyþór Gunnarsson og hljómsveit hans, Mezzoforte er tilnefnd til verðlaunanna.Mynd/Ulla C. Binder
Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs eru ein fimm verðlauna sem veitt eru árlega af Norðurlandaráði.

Annað hvert ár eru verðlaunin veitt fyrir tónverk eftir núlifandi tónskáld og hitt árið hópum tónlistarmanna sem sýna mikla listræna og faglega færni.

„Ég og Gulli Briem verðum viðstaddir verðlaunaafhendinguna en við í Mezzoforte förum svo í mikið tónleikaferðlag um Evrópu og Asíu, daginn eftir hátíðina.“

Verðlaunin voru fyrst veitt árið 1965. Færeyska tónlistarkonana Eivør Pálsdóttir er tilnefnd til sömu verðlauna fyrir hönd Færeyinga.

Nokkrir Íslendingar hafa hlotið verðlaunin, en á meðal þeirra eru Björk Guðmundsdóttir sem hlaut verðlaunin árið 1997 og Anna Þorvaldsdóttir sem hlaut þau í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.