Nýlega gekk fyrsta almenna bílasalan eða Bílasala Íslands í Bílgreinasambandið. Hingað til hafa almennar bílasölur staðið utan við sambandið, að sögn Özurar Lárussonar formanns Bílgreinasambandsins, en ákveðið var að gera átak í því að fá þær inní sambandið enda stórir aðilar í rekstri innan bílgreinarinnar.
Á sama tíma fjölgaði um tvö verkstæði innan BGS, þ.e. Bílaverkstæði Austurlands á Egilsstöðum og Car-Med ehf. í Kópavogi. Innan Bílgreinasambandsins eru nú 118 fyrirtæki sem starfa innan bílgreinarinnar.
