Sport

Þróttur Íslandsmeistari í blaki

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Þróttur og HK eigast hér við.
Þróttur og HK eigast hér við. Mynd/Stefán
Þróttur frá Neskaupsstað hefndi fyrir tapið í bikarúrslitunum er liðið tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í blaki kvenna með sigri á HK.

Þróttur vann úrslitarimmuna 3-0 en leikið var í Neskaupsstað í dag. Þar höfðu heimamenn betur, 3-2 (25-18, 25-20, 20-25, 8-25, 15-8).

HK varð á dögunum bikarmeistari kvenna eftir sigur á Þrótturum í úrslitaleik.

Lauren Laquerre var með 20 stig fyrir Þrótt í dag og Hulda Elma Eysteinsdóttir fimmtán. Elsa Sæný Valgeirsdóttir skoraði fimmtán stig fyrir HK og Þórey Haraldsdóttir tólf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×