Blatter vill að HM 2022 verði spilað í jólamánuðinum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. nóvember 2013 22:45 Sett Blatter, forseti FIFA. Mynd/NordicPhotos/Getty
Sett Blatter, forseti FIFA, er undir stöðugri pressu að komast að niðurstöðu um hvenær HM í fótbolta í Katar fari fram eftir níu ár en allir eru sammála því að það er ekki hægt að halda mótið í hitasvækjunni sem er í Katar yfir sumartímann. Nýjasta útspil forseta Alþjóðaknattspyrnusambandsins er að mæla með því að Heimsmeistaramótið fari fram í nóvember og desember árið 2022. Hann telur ekki koma til greina að halda keppnina í byrjun ársins, það er í janúar eða febrúar, eins og flestir hafa talað um hingað til. „Þegar ég tala um vetur þá er ég að meina nóvember og desember. Keppnin getur ekki farið fram í janúar eða febrúar," segir Sett Blatter við AP-fréttastofuna en aðalástæðan fyrir því er að á þeim tíma fara fram Vetrarólympíuleikarnir. Það kemur þó ekki í ljós fyrr en í júlí 2015 hvort vetrarleikarnir 2022 verða í Ósló, Kraká, Lviv, Peking eða Almaty. Það eru fleiri en Blatter sem eru að henda fram tillögum að nýjum tíma fyrir HM 2022 en Karl Heinz Rumenigge, formaður knattspyrnufélaga í Evrópu, vill sjá HM í Katar fara fram í apríl og maí 2022 og Michel Platini, forseti UEFA, vill halda mótið í janúar. Það er í það minnsta ljóst að það þarf að hliðra til keppnistímabilinu í Evrópufótboltanum til að koma HM fyrir á nýjum tíma.
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Segir fjórðung í bók Óla ósannan Íslenski boltinn Fyrrum kappaksturshetja og fjölskylda hans létust í flugslysi Sport „Grimmileg áminning um hversu harkalegt og grimmt lífið getur verið“ Fótbolti „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Enski boltinn Hætti við að keppa út af hundinum sínum Sport Elías mættur til meistaranna Íslenski boltinn Helmingur landsliðskvenna er undir lágmarkslaunum Fótbolti „Er því miður kominn í jólafrí“ Handbolti Syrgir góðan félaga í Åge: „Ótrúlega leiðinlegt að hann sé nú farinn“ Fótbolti KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hrannar Snær til Noregs Breiðablik, Valur og Þór/KA fengu milljónir vegna EM Elías mættur til meistaranna Syrgir góðan félaga í Åge: „Ótrúlega leiðinlegt að hann sé nú farinn“ KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Karólína Lea því miður of snemma í jólafrí Alexander Isak fékk sænska gullboltann Hilmar Árni til starfa hjá KR „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Helmingur landsliðskvenna er undir lágmarkslaunum „Grimmileg áminning um hversu harkalegt og grimmt lífið getur verið“ Segir fjórðung í bók Óla ósannan Í fyrsta sinn rukkað inn á Fan Zone á HM Davíð sendir hjartnæma kveðju til Hareide Svona endaði Sambandsdeildin: Finnarnir áfram eftir jafntefli við Palace Strasbourg - Breiðablik 3-1 | Hetjuleg barátta dugði skammt Napoli í úrslit í Sádi-Arabíu Åge Hareide látinn Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn „Við þurfum bara að keyra á þetta“ Segir Nóel Atla frábært dæmi um það þegar hlutirnir gangi upp Glódís gæti þurft að ryðja Man. Utd og Barcelona úr vegi að úrslitaleiknum Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Evrópusumma Blika komin í 800 milljónir og gæti nálgast milljarð í kvöld Liðsfélagi landsliðsmanns missti unga frændur sína í sprengingu Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ Bíður eftir kallinu frá Arnari: „Myndi segja að ég væri klár“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Sjá meira