Lífið

Myndin sem er að gera allt brjálað

Bandaríska slúðurblaðið Star birtir mynd af óléttri Kate Middleton í bikiníi á forsíðu nýjasta heftis blaðsins. Myndin var tekin af hertogynjunni er hún fór í frí með Vilhjálmi prins á eyjunni Mustique.

Á myndinni sést glitta í óléttubumbu Kate í fyrsta sinn. Það kemur á óvart að Star skuli fara þessa leið því breska konungsfjölskyldan var ævareið fyrir stuttu þegar myndin birtist í ítalska slúðurblaðinu Chi. Chi birti einnig 26 síðu úttekt á síðasta ári með myndum af Kate þar sem hún var ber að ofan sem vakti enga lukku í höllinni.

Kate er ekki sátt við myndbirtinguna.
Þetta er líka mikið högg fyrir Mustique sem státar af því að vera staður þar sem paparassar þrífast ekki.

Kate og Vilhjálmur vilja halda einkalífinu út af fyrir sig.
Forsíðan á Star.
Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×