Menning

Kælan mikla vann sjötta Ljóðaslammið

Freyr Bjarnason skrifar
Kælan mikla bar sigur úr býtum í Ljóðaslammi Borgarbókasafnsins.fréttablaðið/Valli
Kælan mikla bar sigur úr býtum í Ljóðaslammi Borgarbókasafnsins.fréttablaðið/Valli
Hljómsveitin Kælan mikla vann keppnina Ljóðaslamm Borgarbókasafnsins sem var haldin í sjötta sinn á Safnanótt síðastliðinn föstudag.

Hljómsveitina skipa Sólveig Matthildur Kristjánsdóttir, Laufey Soffía Þórsdóttir og Margrét Rósa Dóru- Harrysdóttir. Þær eru átján og nítján ára og stunda nám við Fjölbrautaskólann í Breiðholti og Menntaskólann í Hamrahlíð.

Að sögn söngvarans Laufeyjar Soffíu var Kælan mikla stofnuð í kringum keppnina. "Sólveig er mjög mikið í því að semja. Við vorum að leika okkur að spila saman og hún var búin að skrá sig í keppnina en vissi ekki hvað hún ætlaði að gera. Okkur fannst það koma vel út að flytja ljóðin hennar saman,“ segir hún. "Það getur vel verið að við höldum áfram að semja við ljóðin hennar eftir þetta.“ Aðspurð segir Laufey Soffía sigurinn hafa komið þeim á óvart. "Já, þetta var rosalega skemmtilegt.“

Ljóðaslammið hefur verið fastur liður í dagskrá Vetrarhátíðar frá árinu 2008. Þar keppir ungt fólk á aldrinum 15-25 ára í orðlist með frjálsri aðferð, þar sem áhersla er ekki síður lögð á flutninginn en orðið sjálft. Þemað í ár var bilun og alls voru atriðin sjö sem tóku þátt.

Siguratriði Laufeyjar, Sólveigar og Margrétar var ljóðabræðingurinn Ætli það sé óhollt að láta sig dreyma? Þar söng Laufey texta Sólveigar um svarta svani, líkamnaða þrúgun og drottningardraumóra við trommu- og bassaundirleik stalla sinna.

Í sigurlaun fengu þær miðbæjarkort sem gildir sem inneign í verslunum í miðbænum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.