Menning

Ljóðskáld með ljóðabræðing

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Ljóðskáldin Aðalsteinn Ásberg, Halla Margrét og Heiðrún kallast á í ljóðum.
Ljóðskáldin Aðalsteinn Ásberg, Halla Margrét og Heiðrún kallast á í ljóðum.
Á næstu vikum flytja ljóðskáldin Aðalsteinn Ásberg, Halla Margrét Jóhannesdóttir og Heiðrún Ólafsdóttir ljóðadagskrá sem nefnist Ljóð eftir ljóð eftir ljóð. Um er að ræða nýmóðins ljóðabræðing úr nýjustu bókum þeirra eða samfellt ljóðaflóð. Fyrsti bræðingurinn fer fram á Stofunni við Ingólfstorg annað kvöld klukkan 20.



Við erum búin að vera að spinna svolítið,“ segir Halla Margrét. „Þetta er ekki hefðbundinn ljóðaupplestur, þar sem hver les ljóð eftir sig og síðan tekur næsti við, heldur köllumst við svolítið á í ljóðunum, komum inn í lestur hvert annars og leikum okkur svolítið með þetta.“



Í framhaldi af ljóðabræðingnum á Stofunni mun ljóðatríóið troða upp á höfuðborgarsvæðinu og víðar. Fyrirtækjum og stofnunum stendur til boða ljóðagjörningur af svipuðum toga sem hentar í menningarhádegi eða önnur samkvæmi. „Það er algengt að fyrirtæki bjóði upp á einhver skemmtiatriði í hádeginu á aðventunni og þá bjóðum við upp á smámenningardagskrá ef fólk vill nýta sér það,“ segir Halla Margrét.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.