Lífið

Foreldrarnir skilja

Foreldrar Miley Cyrus eru að skilja.Nordicphotos/getty
Foreldrar Miley Cyrus eru að skilja.Nordicphotos/getty Nordicphotos/getty
Foreldrar söng- og leikkonunnar Miley Cyrus hafa sótt um skilnað.

Eitthvað virðist sú ákvörðun þeirra hafa komið Cyrus í opna skjöldu en hún setti eftirfarandi skilaboð til föður síns, Billy Ray Cyrus, á samskiptavefinn Twitter í vikunni.

„Þar sem sms-skilaboðin og tölvupósturinn þinn er augljóslega ekki að virka, viltu kannski fara þess leið í samskiptum?“



Cyrus skaust upp á stjörnuhimininn í Bandaríkjunum ung að aldri eftir að hún fór með aðalhlutverk í þáttunum Hannah Montana á Disney-sjónvarpsstöðinni.

Hún er trúlofuð leikaranum Liam Hemsworth en undanfarið hafa þær sögur gengið að samband þeirra sé búið. Hvorugt þeirra hefur þó staðfest þann orðróm.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.