Tónlist

Allt að 25 þúsund á tónleikum Of Monsters and Men

Talið er að allt að 25 þúsund hafi verið á tónleikunum.
Talið er að allt að 25 þúsund hafi verið á tónleikunum.
Allt að 25 þúsund gestir voru á tónleikum Of Monsters and Men sem haldnir voru við Vífilsstaði í Garðabæ í kvöld.

Tónleikarnir gengu að mestu leyti vel fyrir sig fyrir utan nokkra ölvaða einstaklinga. Strætó bs. sá um að ferja stærstan hluta tónleikagesta til og frá tónleikasvæðinu.

Að sögn björgunarsveitarmanns á svæðinu voru um 25 þúsund manns á svæðinu þegar mest lét. Góð stemning var meðal áhorfenda sem sungu og dönsuðu með. Mikla lukku vakti lítil fjarstýrð þyrla sem hóf sig á loft í einu af lokalögum Of Monsters and Men. Tónleikarnir voru teknir upp á myndband og var þyrlan notuð við upptökur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×