Sport

Standa með A-Rod

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
nordicphotos/getty
Forráðamenn New York Yankees í bandaríska hafnaboltanum hafa áfrýjað keppnisbanni sem Alex Rodriguez var dæmdur í vestanhafs.

Rodriguez er gefið að sök að hafa bætt árangur sinn á íþróttavellinum með notkun ólöglegra lyfja. Var hann dæmdur í keppnisbann út næstu leiktíð vegna þessa. Íþróttamaðurinn lék sinn fyrsta leik á mánudaginn í langan tíma eftir fjarveru sökum meiðsla.

Brian Cashman, stjóri Yankees, segir að Rodriguez verði áfram í hópnum hjá liðinu á meðan líkamlegt ástand hans leyfi það.

Rodriguez spilaði aftur með Yankees í gærkvöldi í tapleik gegn Chicago White Sox.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×