Bíó og sjónvarp

Fyrsta sýnishorn úr This is Sanlitun

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Fyrsta sýnishornið úr myndinni This is Sanlitun, nýjustu myndar Róberts Douglas, var birt í dag. Hún er önnur tveggja íslenskra mynda sem verða frumsýndar á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto í september. Hin er kvikmynd Ragnars Bragasonar, Málmhaus.

This is Sanlitun er fjórða leikna kvikmynd leikstjórans en hann gerði áður myndirnar Íslenski draumurinn, Maður eins og ég og Strákarnir okkar. Myndin er tekin upp í Kína þar sem Róbert hefur verið búsettur undanfarið.

Sýnishornið má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.