Umboðsmaður Alþingis vill upplýsingar um harkalegu handtökuna Valur Grettisson skrifar 8. júlí 2013 13:26 Róbert Spanó er settur Umboðsmaður Alþingis. Hann hefur óskað eftir upplýsingum um harkalegu handtökuna.
Settur umboðsmaður Alþingis hefur ritað lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu fyrirspurnarbréf vegna myndskeiðs sem Vísir birti og sýndi harkalega handtöku um helgina. Á vef umboðsmanns Alþingis segir að í ljósi myndbandsins sem birtist í fjölmiðlum, og víða á Facebook, af valdbeitingu lögreglu við handtöku, hafi umboðsmaður séð ástæðu til þess að óska eftir upplýsingum um málið. Stefán Eiríksson, lögreglustjóri, hefur ekki viljað tjá sig við fjölmiðla um málið umfram það sem fram kom í tilkynningu frá lögreglu í morgun. Þar kom meðal annars fram að málinu hefði verið vísað til ríkissaksóknara og að embætti ríkislögreglustjóra hefði verið gert viðvart vegna þessa. Á myndbandinu má sjá lögregluna handtaka konu með harkalegum hætti. Lögreglumaður fleygir henni á bekk og þaðan í jörðina. Konan sjálf vildi ekki tjá sig við fjölmiðla þegar eftir því var leitað. Þess má geta að skammt er liðið síðan umboðsmaður Alþingis óskaði eftir upplýsingum frá lögreglu eftir að tvær unglingsstúlkur voru handteknar eftir eftirför lögreglunnar í Árbæ.
Tengdar fréttir Harkaleg handtaka í miðborginni vekur athygli Myndband af íslenskum lögreglumönnum í miðborginni um helgina hefur vakið mikla athygli á Facebook í kvöld. 7. júlí 2013 23:39 Harkalegu handtökunni vísað til ríkissaksóknara Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ákveðið að vísa handtöku á konu sem náðist á myndband í miðborg Reykjavíkur, til rannsóknar hjá ríkissaksóknara. 8. júlí 2013 10:00 Mest lesið Eldar loga í LA og neyðarástandi lýst yfir Erlent Ibrahim hafi horfið sjónum bílstjórans í fáeinar sekúndur Innlent Íbúar hafi óttast að svona gæti farið Innlent Gerði ráð fyrir að verða formaður þingflokksins Innlent Ummælin um Grænland risastórt mál sem ætti að taka alvarlega Innlent Af hverju langar Trump í Grænland? Erlent Sjálfstæðismenn orðnir eins og vinstrimenn Innlent Fluttur á slysadeild til aðhlynningar eftir bruna á Sævarhöfða Innlent Krefjast upptöku á aragrúa gullmuna í fíkniefnamáli tvíbura Innlent Telur stjórnsýsluúttekt litlu breyta fyrir íbúa og íhugar að flytja Innlent Fleiri fréttir Foreldrar Ibrahims krefjast tuttugu milljóna í miskabætur Eyddu tundurduflinu á botni Eyjafjarðar Gæsluvarðhald vegna stunguárásar framlengt 333 veðurviðvaranir gefnar út á nýliðnu ári Sárt að vera sakaður um að maka krókinn á ósiðlegan hátt Bílstjórinn á Ásvöllum ákærður fyrir manndráp af gáleysi Bein útsending: Útför Egils Þórs Jónssonar Telur stjórnsýsluúttekt litlu breyta fyrir íbúa og íhugar að flytja Ummælin um Grænland risastórt mál sem ætti að taka alvarlega Efla vöktun við Ljósufjöll vegna jarðhræringa Gagnrýna aðbúnað í hjólhýsabyggðinni á Höfðanum Ibrahim hafi horfið sjónum bílstjórans í fáeinar sekúndur Íbúar hafi óttast að svona gæti farið Kettlingur í Reykjavík greindur með H5N5 Gerði ráð fyrir að verða formaður þingflokksins Skjálftar við Grjótárvatn og Bárðarbungu Fluttur á slysadeild til aðhlynningar eftir bruna á Sævarhöfða Tundurduflið dregið út á Eyjafjörð og eytt í birtingu Sjálfstæðismenn orðnir eins og vinstrimenn Krefjast upptöku á aragrúa gullmuna í fíkniefnamáli tvíbura Framtíð Grænlands ráðist í Grænlandi Götulokanir á Akureyri vegna tilfærslu sprengjunnar Hafi þurft að þola ómannúðlega meðferð sem dró hann til dauða Stefnir ríkinu vegna plastbarkamálsins „Hann kom víða við og snerti marga“ Fimm sækjast eftir embætti Landlæknis „Þetta er sannarlega mikill heiður“ Innri endurskoðun tekur ferlíkið við Álfabakka fyrir Bjarni misst stuðning úr sínum kjarnahópi Krefji Eddu um margfalt hærri upphæð en eðlilegt sé Sjá meira
Harkaleg handtaka í miðborginni vekur athygli Myndband af íslenskum lögreglumönnum í miðborginni um helgina hefur vakið mikla athygli á Facebook í kvöld. 7. júlí 2013 23:39
Harkalegu handtökunni vísað til ríkissaksóknara Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ákveðið að vísa handtöku á konu sem náðist á myndband í miðborg Reykjavíkur, til rannsóknar hjá ríkissaksóknara. 8. júlí 2013 10:00