Tónlist

Góðir dómar og Evróputúr

Sindri Már og félagar eru á leiðinni í tónleikaferð.
Sindri Már og félagar eru á leiðinni í tónleikaferð. Mynd/Ingibjörg Birgisdóttir
Sin Fang er á leið í þriggja vikna tónleikaferðalag um Evrópu um miðjan maí næstkomandi.

Sindri Már Sigfússon og hljómsveit leika á tónleikum í Frakklandi, Hollandi, Þýskalandi, Sviss, Austurríki og Ítalíu. Tónleikaferðin er farin til að fylgja eftir plötunni Flowers sem kom út í febrúar hjá þýska útgáfufélaginu Morr Music.

Flowers hefur fengið mjög góðar viðtökur hjá íslenskum gagnrýnendum sem og í erlendum tónlistarmiðlum. Hún fékk 9 af 10 í einkunn hjá breska tímaritinu The Line of the Best Fit og þýska tónlistartímaritið Intro gaf henni fullt hús eða fimm stjörnur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.