Tónlist

Áfram sviptingar í plötusölu

Trausti Júlíusson skrifar
HMV-verslunarkeðjan í Bretlandi verður opin áfram.
HMV-verslunarkeðjan í Bretlandi verður opin áfram.
Það hafa orðið miklar breytingar á plötusölu í heiminum síðustu ár. Bæði hefur niðurhal aukist á kostnað tónlistar á föstu formi og eins taka netrisar eins og Amazon til sín stöðugt stærri hluta af því sem selst af geisladiskum og vínyl.

Í síðustu viku bárust þær fréttir að HMV-verslunarkeðjan í Bretlandi væri komin í greiðslustöðvun. HMV, sem rekur 223 verslanir og er með um 4.000 manns í vinnu, er síðasta plötubúðakeðjan sem eftir er á Bretlandseyjum. Tower Records, Virgin Megastore, Our Price, Zavvi og allar hinar eru löngu horfnar af sjónarsviðinu. HMV-búðirnar hafa verið með 38% markaðshlutdeild í sölu á tónlist á föstu formi í Bretlandi og um 27% af sölu á DVD-diskum, en samt hefur reksturinn ekki gengið sem skyldi og salan fyrir síðustu jól var langt undir væntingum. Flaggskip HMV er verslunin á Oxford Street númer 150 í London sem er stærsta plötubúð heims.

Fréttirnar af vandræðum HMV fengu mikil viðbrögð. Fyrsta HMV-plötubúðin var opnuð árið 1921, þannig að tónlistarunnendur í Bretlandi eru aldir upp með þeim. Flestir hörmuðu fréttirnar, ekki síst plötuútgefendur, en sumir sáu samt í þessu aukna möguleika fyrir sjálfstæðu plötubúðirnar. Þær bjóða upp á persónulegri þjónustu og eiga auðveldara með að aðlaga sig að breyttum aðstæðum. Hlutdeild HMV í sölu á vínylplötum er t.d. mun lægra en í sölu á geisladiskum, sem segir sitt.

Á þriðjudag bárust hins vegar þær fréttir að Hilco-fyrirtækið, sem sérhæfir sig í endurskipulagningu fyrirtækja sem komin eru í þrot, væri að landa samningi um kaup á HMV. Hilco keypti HMV-keðjuna í Kanada og rekur með ágætum árangri. Talið er að Hilco fái HMV á góðu verði þar sem útgefendur á tónlist og kvikmyndaefni eru tilbúnir að ganga mjög langt til þess að halda keðjunni á lífi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.