Samfylkingin borgaði skuldina Kjartan Guðmundsson skrifar 2. júní 2013 20:08 Hafnfirðingarnir í Botnleðju, þeir Heiðar Örn Kristjánsson, Ragnar Páll Steinsson og Haraldur Freyr Gíslason, hafa notið mikilla vinsælda í gegnum tíðina. Mynd/Anton
Rokksveitin Botnleðja sendir senn frá sér safnskífuna Þegar öllu er á botninn hvolft, þar sem finna má helstu smellina og óútgefnar upptökur auk tveggja glænýrra laga. Rokkararnir og leikskólakennararnir Heiðar Örn Kristjánsson og Haraldur Freyr Gíslason rifja upp plöturnar, trommarastöðuna í Coldplay sem var afþökkuð og stuðningslagið við stjórnmálaflokkinn.Er einhver sérstök ástæða fyrir því að gefa út safnplötu á þessum tímapunkti? Heiðar: „Nei ekki þannig. Það er ekkert afmæli í ár eða neitt slíkt.“ Halli: „Við komum óvænt fram á minningartónleikum um Hermann Fannar Valgarðsson, vin okkar sem lést fyrir aldur fram árið 2011, og í framhaldi af því vorum við með smá "kombakk" síðasta sumar. Þá kom til tals að svona safnplata væri löngu orðin tímabær, svo við ákváðum að æfa upp tvö ný lög og grafa í geymslunum eftir ýmsu óútgefnu efni, b-hliðum og slíku."Hvers geta aðdáendur sveitarinnar vænst af plötunni? Heiðar: „Ég hugsa að þetta sé mjög feitur pakki, tvöföld plata, og kennir ýmissa grasa. Á annarri hliðinni eru vinsælustu lögin okkar og á hinni eru meðal annars b-hliðar eins og Ave maria, Í stuði með Þossa og Simma sem heyrðist mikið eitt sumarið, Reykjavíkurnætur eftir Megas, Devo-lagið Uncontrollable Urge og líka einhverjar enskar útgáfur af lögunum okkar, demó-útgáfur, tónleikaútgáfur og fleira." Halli: „Svo eru þarna lög sem komust ekki á allar fimm plöturnar okkar. Eitt lag sem komst ekki á fyrstu plötuna okkar, Drullumall, sem heitir Konan með kleinurnar, þrjú lög sem ekki náðu inn á Fólk er fífl og svo mætti lengi telja. Í raun má segja að það sé góð ástæða fyrir því að sum af þessum lögum voru ekki á plötunum, því þau verða seint talin með bestu lögum Botnleðju, en eitt lag sem ekki komst á fjórðu plötuna okkar, Douglas Dakota, er mjög gott og við áttum okkur ekki á því hvers vegna við slepptum því." Heiðar: „Það er óskiljanlegt." Halli: „Við fundum líka upptökur af lögum sem við gerðum fyrir sjónvarpsþátt sem Baltasar Kormákur gerði, helling af tónlist, en enginn okkar man nokkuð eftir því að hafa búið þetta til. Og það er ekki vegna þess að við höfum verið í einhverju rugli, við getum bara ómögulega munað neitt í sambandi við þetta." Heiðar: „Ég hlustaði á þessi lög og var á tímabili mjög efins um að það væru í raun og veru við sem værum að spila. En það var gaman að fara í gegnum allar þessar upptökur, að loka þessu tímabili og pakka því inn á vissan hátt."Erum opnir fyrir nýrri plötuÞú talar um að loka þessu tímabili. Nú eru tvö spánný lög á plötunni, þar af lagið Panikkast sem er byrjað að heyrast á öldum ljósvakans, og einhverjir vonast væntanlega eftir því að þetta sé frekar framhald en endalok. Halli: „Ef þessi nýju lög leggjast vel í fólk og það telur að við höfum eitthvað fram að færa, að við séum enn þá "með þetta", þá erum við opnir fyrir því að gera nýja plötu. En þessar forsendur þurfa þá að liggja fyrir. Það er ekkert sérlega gaman þegar gamlir karlar koma saman og gera plötu sem enginn fílar. Við berum mikla virðingu fyrir Botnleðju og allt sem kemur frá þeirri sveit verður að vera hundrað og þrjátíu prósent." Heiðar: „Oft er fólk kannski að gera þetta fyrir sjálft sig og er alveg sama hvað öðrum finnst. En við viljum að fólk fíli þetta." Halli: „Við erum vanir því að vera á toppnum og ætlum ekkert að breyta því." Heiðar: „Toppleðja." Halli: „Einmitt. Við ættum eiginlega að breyta nafninu á hljómsveitinni." Hvernig metið þið hvort forsendurnar fyrir nýrri plötu séu fyrir hendi? Halli: „Málið verður sett í svokallaða rannsóknarnefnd Botnleðju, sem metur ummæli fólks." Heiðar: „Sú vinna mun hefjast í haust."Boðið að tromma í ColdplayÞið unnuð Músíktilraunir 1995 og störfuðuð sleitulaust í nærri tíu ár, þar til að kom að fríinu langa. Hvenær var Botnleðja best? Heiðar: „Að mínu mati náðum við að toppa okkur á Magnyl, þriðju plötunni. Ég tengi best við hana í dag." Halli: „Á Magnyl var sándið eins og við fílum það. Bjagað og lifandi."Botnleðja var mjög vinsæl hljómsveit á löngu tímabili. Þið hituðuð meðal annars upp fyrir Blur á hljómleikaferðalagi og spiluðuð fyrir fjölda fólks bæði hérlendis og erlendis. Leið ykkur nokkurn tíma eins og rokkstjörnum? Heiðar: „Nei. Við höfum alla tíð hlegið að öllum slíkum vangaveltum og aldrei pælt mikið í þeim." Halli: „Listrænt frelsi hefur alltaf skipt okkur miklu máli og "sell out" kom aldrei til greina. Okkur var boðið alls kyns rugl, sem hefði hugsanlega aukið vinsældir okkar annars staðar, en við tókum aldrei þátt í því." Heiðar: „Pródúsentar vildu poppa sándið okkar upp og eitthvað slíkt, en við neituðum alltaf." Halli: „Mér var líka boðið að fara í tónleikaferðalag með Coldplay, en afþakkaði það. Ekki vegna þess að það hefði verið "sell out" heldur vegna þess að mér fannst demóin sem þeir sendu mér, með nokkrum lögum af fyrstu plötunni þeirra Parachutes, svo ógeðslega leiðinleg." Heiðar: „Þeir ráku trommarann sinn tímabundið og voru í vandræðum." Halli: „Ég væri alls ekki til í að vera í hans sporum núna." Heiðar: „Er það ekki?" Halli: „Nei. Ég er sannfærður um að ég valdi rétt." Heiðar: „Svo gerðum við auðvitað lag fyrir Samfylkinguna, Ég er frjáls, til að redda okkur út úr fjárhagsvandræðum." Halli: „Við tókum lán til að gefa Douglas Dakota-plötuna út sjálfir, en henni var dreift hjá Japis sem einhverjir gosar höfðu tekið við. Svo fór Japis á hausinn og innkoman af plötunni festist inni. Við vorum því í skítamálum, fjárhagslega séð, og neyddumst til að gera þetta lag. Samfylkingin borgaði niður skuldirnar okkar. Þannig var skjaldborgin þá." Heiðar: „Okkur leið ekkert vel með þetta en réðum okkur bara í vinnu og skiluðum okkar, með óbragð í munninum."Og kusuð þið Samfylkinguna í þessum kosningum? Halli: „Það getur enginn sannað það."Hluti af heimsyfirráðapælingumÁrið 2003 skelltuð þið ykkur báðir í Kennaraháskólann og lærðuð til leikskólakennara. Nokkrum árum síðar varð hljómsveitin Pollapönk til og þannig urðuð þið líka að hetjum hjá yngstu krökkunum. Ekki getur þetta talist hefðbundin leið fyrir rokkara að fara? Halli: „Þetta er allt hluti af heimsyfirráðaplönum, sjáðu til." Heiðar: „Einmitt. Krakkarnir sem hlustuðu á fyrstu Pollapönksplötuna eru margir orðnir unglingar í dag. Nú kemur Botnleðja aftur og þá geta þessir unglingar skipt úr Pollapönki yfir í Botnleðju og svo koll af kolli."En segjum svo að Botnleðja haldi risatónleika á næstunni. Ef þið fengjuð fullkomlega frítt spil, hvaða hljómsveitir myndu þá hita upp? Halli: „Nirvana. Engin spurning." Heiðar: „Blur. Við höfum hitað svo oft upp fyrir þá og þeir skulda okkur."
Tónlist Mest lesið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Lífið Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Lífið Úr Idolinu yfir í útvarpið Lífið Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Lífið „Æsandi að hugsa til þess að annar maður horfi á“ Lífið „Æi góði hoppaðu upp í rassgatið á þér!“ Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Lífið Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Lífið Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Lífið Fleiri fréttir Frumsýning á Vísi: Rokkað á miðju gólfi komin sjö mánuði á leið „Þetta er sem betur fer ekki upp á líf og dauða“ Ævintýrin hófust þegar hann hafnaði Juilliard Enginn súr í sætu teiti í Ásmundarsal „Ég fæ morgnana til að vera bara ég“ Rokkþyrstir geta tekið gleði sína á ný Sigga Ózk verður Ariana Grande og flytur til Noregs Ávísun á eilíf vonbrigði að elta góða veðrið Frumsýning á Vísi: Landsliðsmaður gefur út lag með pabba sínum Taylor Swift jafnaði met Beyoncé á VMA Myndaveisla: Ofurfjör á Októberfest Sáu ekki fyrir sér vinsældirnar en fagna nú 36 árum Sergio Mendes höfundur Mas Que Nada látinn Gáfu tóndæmi af Barfly í beinni Aldrei séð annað eins: IceGuys seldi nítján þúsund miða Herra Hnetusmjör stoltur eftir tryllta afmælishelgi Samtalið órjúfanlegur hluti af sköpuninni Ótrúlega slakandi raftónlistarhátíð í fimmtánda skiptið Segir Marr hafa stöðvað endurkomu The Smiths Fjörutíu blaðamönnum boðið en enginn mætti Stormaði út með látum en gafst svo upp á skrifstofustarfinu Dásamar Charlie XCX þrátt fyrir orðróminn Slíðra sverðin og boða endurkomu sveitarinnar Snorri valinn á lista 20 undir 30 hjá tímaritinu IQ Valin á lista efstu tuttugu hjá Norðurlöndunum Helgi Björns með splunkunýtt tónlistarmyndband Chappell Roan biður um frið: „Konur skulda ykkur ekki skít“ Aron Can með stóra tónleika erlendis Haustinu fagnað með tónleikum á Kaffi Flóru Nýdönsk og ADHD fá hvorar tvær milljónirnar Sjá meira