Menning

Akademía fyrir framúrskarandi nemendur

Verkefnisstjórinn Kristín Mjöll segir akademíuna mikla lyftistöng fyrir íslenskt tónlistarlíf.
Verkefnisstjórinn Kristín Mjöll segir akademíuna mikla lyftistöng fyrir íslenskt tónlistarlíf. Fréttablaðið/Valli
Áherslan er á að fá hingað framúrskarandi kennara og nemendur sem hafa staðið sig vel og unnið til verðlauna á alþjóðavettvangi,“ segir Kristín Mjöll Jakobsdóttir, verkefnisstjóri Alþjóðlegu tónlistarakademíunnar sem hefst í Hörpu með glæsilegum opnunartónleikum á morgun.

„Þar mun Eva Þórarinsdóttir, íslenskur fiðluleikari og vinningshafi Carl Nielsen keppninnar 2012, leika ásamt Richard Simm á píanó. Á tónleikunum koma einnig fram fiðluleikararnir Yabing Tan frá Kína og hin 10 ára Christina Nam frá Kóreu ásamt Haeri Suh á píanó og Christoph Sassmannshaus á selló,“ segir Kristín Mjöll. „Á mánudagskvöld verða svo kennaratónleikarnir og þar mun Kurt Sassmannshaus, sem verður aðalkennarinn á námskeiðinu og stjórnandi strengjasveitarinnar, leika ásamt tríói sínu. Auk þess fara fram á mánudaginn mjög spennandi „masterklassar“ undir stjórn Ole Böhn, konsertmeistara Norsku þjóðaróperunnar og prófessors í Sydney og Bryndísar Höllu Gylfadóttur, leiðara sellódeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Alls verða níu „masterklassar“ á námskeiðinu og fara þeir flestir fram í Listaháskóla Íslands.“

Það er Lin Wei Sigurgeirsson, listrænn stjórnandi akademíunnar, sem á frumkvæði að hugmyndinni um alþjóðlegt tónlistarnámskeið og sumartónleika í Hörpu fyrir tónlistarnema. Hún hefur í samvinnu við Ara Þór Vilhjálmsson, Sigurgeir Agnarsson og Kristínu Mjöll hleypt hugmyndinni af stokkunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.