Innlent

Stefán Logi áfram í gæsluvarðhaldi

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Stefán Logi og annar maður voru úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald í dag.
Stefán Logi og annar maður voru úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald í dag. mynd/365
Stefán Logi Sívarsson og Davíð Freyr Magnússon, voru úrskurðaðir í fjögurra vikna áframhaldandi gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, samkvæmt upplýsingum frá Helga Magnúsi Gunnarssyni, vararíkissaksóknara.

Stefán Logi og Davíð Freyr eru grunaðir um aðild að tveimur alvarlegum líkamsárásum og frelsissviptingu í sumar.

Stefán Logi hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því í júlí í sumar. Hann er jafnframt grunaður um aðild að tveimur alvarlegum líkamsárásum og frelsissviptingu í júlí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×