Fótbolti

Ferna Lewandowski afgreiddi Real Madrid

Lewandowski fagnar í kvöld.
Lewandowski fagnar í kvöld. Nordic Photos / Getty Images
Pólverjinn Robert Lewandowski varð í kvöld fyrsti maðurinn til þess að skora fjögur mörk gegn Real Madrid í Evrópuleik. Lewandowski skoraði öll mörk Dortmund sem pakkaði Real Madrid saman og vann 4-1 sigur.

Þetta var fyrri leikur liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Dortmund byrjaði leikinn með látum. Mikið var eðlilega látið með að Mario Götze væri búinn að semja við Bayern en hann lagði upp fyrsta mark leiksins snemma. Átti frábæra sendingu í teiginn sem Lewandowski kom yfir línuna.

Þetta var áttunda mark Lewandwoski í Meistaradeildinni og hann varð þar með markahæsti Pólverjinn í keppninni en Krzysztof Warzycha hefur einnig skorað átta mörk. Lewandowski átti eftir að bæta það mark heldur betur.

Real náði að jafna fyrir hlé þegar miðvörðurinn Mats Hummels gerði skelfileg mistök. Sending hans til baka á markvörð var of stutt. Gonzalo Higuain stal boltanum og renndi fyrir markið þar sem Ronaldo gat ekki annað en skorað.

Síðari hálfleikur byrjaði með látum er Lewandowski skoraði öðru sinni. Margir héldu að hann væri rangstæður en svo var ekki. Einn gegn markmanni og eftirleikurinn auðveldur.

Pólverjinn var ekki hættur því hann skoraði þriðja markið skömmu síðar. Boltinn barst til hans í teignum. Hann sýndi frábæra fótavinnu í snúningnum og negldi boltanum svo í markið. Stórkostlegt mark.

Pólverjinn hafði ekki lokið sér af því hann skoraði næst úr vítaspyrnu og var ekki í vandræðum með það. Vítaspyrnan dæmd á Alonso sem braut klaufalega á Reus.

4-1 lokatölur og heldur betur verk að vinna hjá Real Madrid í seinni leiknum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×