Mesta móðgunin 4. desember 2013 06:00 Ágæta Hrafnhildur Ragnarsdóttir! Þú skrifar pistil og nefnir hann „Orðsending til íslenskra karlmanna“, undirritar sem stjórnarkona Kvenréttindafélags Íslands og misbýður þar með mér og svo ótrúlega mörgum karlmönnum! – og ekki bara karlmönnum, sjáðu! Ég sé þar með ástæðu til að svara þér sem faðir og karlmaður! Ég styð málstaðinn sem þú skrifar fyrir en að skrifa almennt til okkar allra eins og að við séum allir pervertar? Fyrst verð ég að segja að titill þinn á pistli þínum „Orðsending til íslenskra karlmanna“ er einhver mesta móðgun sem ég hef séð á www.vefnum! Mig langar aðeins að útskýra fyrir þér Hrafnhildur hvernig heimurinn lítur út frá mínum sjónarhóli. Eins og í þínum heimi vofir stöðugt hætta yfir karlmanninum. Ég þarf, eins og þú nefnir að hugsa vel og vandlega um við hverjar ég tala og hvað ég segi og hvernig! Þarf einnig að hugsa um hvaða skilaboð ég sendi út og hvernig hinn aðilinn tekur þeim! Ákæra er oft mjög nálæg þegar um samskipti kynjanna er að ræða! Þarf ekki að vera neinn grundvöllur fyrir því, aðeins ákæra! Ákæra frá konu er allt of oft tekin trúanleg og eina ástæða þess að ég hef ekki verið „settur inn“ er sú að ég hef haft konur með mér á „djamminu“ sem er ástæða þess að ég er hættur að fara á þetta „meinta djamm“. Ég hef mjög oft verið kallaður afar illum nöfnum af kynsystrum þínum þrátt fyrir að reyna allt til að vera varkár í orðaskiptum mínum og um fram allt kurteis! Dæmi forðast ég en þetta er samt staðreynd! Einnig verð ég að nefna að ég hef á tímum forðast að brosa, hvað þá að tala við börn, sérstaklega þegar mæður þeirra eru með því að ég fæ ekkert góðar móttökur við slíku! Líður stundum eins og ég sé í hugum þessara mæðra pedófíll! Það er ekki góð tilfinning, Hrafnhildur! Reyndu að setja þig í þau spor! Rek þau viðbrögð þeirra satt að segja beint til málflutnings kvenna eins og þín! Ég bý í landi, eins og þú sem tekur afstöðu með konum gegn körlum án þess að hika! Skoðaðu lög og reglur um börn og umönnun þeirra. Þetta með launin ætla ég ekki að gefa mig inn í af margþættum ástæðum, launaleynd og að mæður fá 6 mánuði eins og ekkert sé í fæðingarorlof en karlmenn þurfa virkilega að berjast fyrir þeim þremur sem þeim eru ætlaðir! Tek fram að feður eiga rétt á, þ.e. í sambandi, að deila 3 mánuðum með konum sínum, þeir sem eru forræðislausir eiga engan rétt! Þegar ég hef orðið fyrir sama ofbeldi og þú talar um hef ég bara verið virtur að vettugi! Karlmenn verða jú ekki fyrir kynferðislegu ofbeldi eins og alkunna er! Hef sjálfur kvartað tvisvar yfir slíku en… Karlmenn verða almennt ekki fyrir nauðgun/kynferðislegu ofbeldi eins og alþekkt er, þeir eiga jú að vera „kynvélar“ sem hafa almennt engar sérstakar tilfinningar heldur einungis stífan lim! Stríðið sem þú nefnir hér er hryllilegt en er ekki einungis á kostnað kvenna! Kynbundið ofbeldi er þekkt vopn og algjör hryllingur en þar sem ég tala hér sem karlmaður verð ég að segja að ofbeldi kvenna er undir yfirborðinu mjög alvarlegt! Hefur það annars verið rannsakað hér á landi? Niðurstöður frá öðrum löndum benda til að hér sé mjög hallað á karlmenn! Magnað að í þau skipti sem ég og barnsmóðir mín höfum haft áhyggjur var af völdum kvenna! Ofbeldi er ekki bara kynferðislegt! Það má hins vegar ekki um það tala! Tengdamæður og feður, ömmur og afar… sambýliskonur… hafa sögu að segja sem kemur ekki í lögregluskýrslum. Það er ekki hægt að hrófla við mæðraveldinu þar sem ekki má rugga þeim alræmda bát! Mikið þykir mér leiðinlegt að lesa skrif þín sem miðast við að „VIГ séum allir eins! „Við“ erum flestir mjög ljúfir að mínu viti. Karlmenn þessa lands eru flestir í góðum málum en eru málaðir í ljótum litum af þeim konum sem lenda illa í minnihlutanum! Ég tek það bæði nærri mér og tek það mjög persónulega þegar ég fæ svona skilaboð frá konu sem talar fyrir allar aðrar konur í landinu! Ég er faðir stúlku sem hefur notið uppeldis míns og ég hef haft það að leiðarljósi að hún muni aldrei verða fórnarlamb! Mér þykir þín skrif senda mjög einkennileg skilaboð til stúlkna landsins, fyrir utan skilaboðin sem drengir þessa lands fá frá þér! Lagaumhverfið hér á landi hefur hins vegar gert það að verkum að ég hef nánast ekkert haft um hana að segja nema af því að ég er frekur með eindæmum! Karlmenn þessa lands hafa ekkert um uppeldi barna sinna að segja nema ef a)móðirin er í fangelsi eða í þaðan af verri málum eða b)gefur föður tækifæri/leyfi á að taka þátt! Kannski er þetta vandamálið varðandi sýnina á karlmenn þessa lands? Ég meina að konurnar „eiga“ börnin og koma sínum hugmyndum að án aðkomu feðra? Jaaa, bara pæling! Gætum við hugsanlega gert betur með því að hugsa um að fólk er fólk en ekki einungis að karlmenn eru hættulegir!? Ég er virkilega leiður að lesa skrif þín, Hrafnhildur, sérstaklega þar sem þú ert stjórnarkona í Kvenréttindafélagi Íslands, félagi sem hefur notið stuðnings okkar sem erum íslenskir karlmenn, frá stofnun þess! Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Stórt inngrip í rekstur íþróttafélaga! Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir Skoðun Sannleikurinn í tengdamömmumálinu Ólöf Björnsdóttir Skoðun Flugan í ídýfunni Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir Skoðun Sósíalistaflokkurinn verður að snúast um meira en rassgatið á Gunnari Smára Trausti Breiðfjörð Magnússon Skoðun Hann breytti öllu – og gerði það með háði Jónas Sen Skoðun Og hvað svo? Eyrún Birna Davíðsdóttir Skoðun Við stöndum saman með íþróttafólkinu – en hvað með fólkið á bak við það? Ingibjörg Isaksen Skoðun Óboðlegt svar um ótæka stjórnsýslu Guðmundur Andri Thorsson Skoðun Látið okkur í friði Vilhjálmur Árnason Skoðun Ekki fylla höfnina af grjóti Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Eru græn svæði í útrýmingarhættu í Reykjavík? Sigrún Ásta Einarsdóttir skrifar Skoðun Efla á forvarnir og setja börn í öndvegi með 5,7 milljarða niðurskurði Grímur Atlason skrifar Skoðun „...ég lærði líka að nota gagnrýna hugsun“ Hanna Björg Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Risastór niðurskurður ríkistjórnarinnar er áfall fyrir foreldra og börn í landinu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Látið okkur í friði Vilhjálmur Árnason skrifar Skoðun Gefðu fimmu! Ágúst Arnar Þráinsson skrifar Skoðun Allar hendur á dekk! Oddný G. Harðardóttir skrifar Skoðun Engin sátt án sannmælis Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Að finna rétt veiðigjald... Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Hvað viltu að samskiptin á vinnustaðnum kosti? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Stórt inngrip í rekstur íþróttafélaga! Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir skrifar Skoðun Börn voga sér inn í afbrotaheim fullorðinna eða er það öfugt? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Sósíalistaflokkurinn verður að snúast um meira en rassgatið á Gunnari Smára Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar Skoðun Og hvað svo? Eyrún Birna Davíðsdóttir skrifar Skoðun Óboðlegt svar um ótæka stjórnsýslu Guðmundur Andri Thorsson skrifar Skoðun Sannleikurinn í tengdamömmumálinu Ólöf Björnsdóttir skrifar Skoðun Hann breytti öllu – og gerði það með háði Jónas Sen skrifar Skoðun Ekki fylla höfnina af grjóti Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Lengri útivistartími barna Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Við stöndum saman með íþróttafólkinu – en hvað með fólkið á bak við það? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Að því að rjúfa vítahring kynslóðabundinna afbrota Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Flugan í ídýfunni Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir skrifar Skoðun Að mennta til lífs, ekki prófa Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími til... Birgir Rúnar Davíðsson skrifar Skoðun Er EES samningurinn gagnlaus fyrir Ísland? Sigurbjörn Svavarsson skrifar Skoðun Er píptest rót alls ills? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Vertu bandamaður kæri bróðir! Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Frá frammistöðuvæðingu til farsældar Helga Þórey Júlíudóttir skrifar Skoðun Ísland á að verja með íslenskum lögum Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Fyrsta skrefið í átt að betri Menntasjóði Logi Einarsson skrifar Sjá meira
Sósíalistaflokkurinn verður að snúast um meira en rassgatið á Gunnari Smára Trausti Breiðfjörð Magnússon Skoðun
Skoðun Efla á forvarnir og setja börn í öndvegi með 5,7 milljarða niðurskurði Grímur Atlason skrifar
Skoðun Risastór niðurskurður ríkistjórnarinnar er áfall fyrir foreldra og börn í landinu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Sósíalistaflokkurinn verður að snúast um meira en rassgatið á Gunnari Smára Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar
Skoðun Við stöndum saman með íþróttafólkinu – en hvað með fólkið á bak við það? Ingibjörg Isaksen skrifar
Sósíalistaflokkurinn verður að snúast um meira en rassgatið á Gunnari Smára Trausti Breiðfjörð Magnússon Skoðun