Tónlist

Gæða gítarleikur hjá Jeff Beck

Freyr Bjarnason skrifar
Gítarleikarinn heimsþekkti á tónleikunum í Háskólabíói.
Gítarleikarinn heimsþekkti á tónleikunum í Háskólabíói. Fréttablaðið/anton
Tónleikar Jeffs Beck í Háskólabíói hófust klukkutíma á eftir áætlun. Hljómsveitin Mezzoforte sá um að hita upp salinn með nokkrum fínum lögum.

Skömmu síðar steig Beck, klæddur joggingbuxum, á svið ásamt fjórum hljóðfæraleikurum, þar á meðal háfættum fiðluleikara og Rhondu Smith, bassaleikara Prince.

Hljóðfæraleikararnir spiluðu frábærlega og skyggðu nánast á hinn 69 ára Beck, sem þó stóð fyrir sínu með alls kyns gítarfimleikum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.