Tónlist

XXX Rottweiler koma saman á Faktorý

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Hljómsveitin XXX Rottweiler spilar á tónleikum á Faktorý annað kvöld, föstudaginn 21. júní klukkan 23.

Erpur Eyvindarsson, meðlimur XXX-Rottweiler segir mikla eftirvæntingu ríkja meðal hljómsveitarmeðlima að spila á tónleikunum. 

„Við erum búnir að vera á leiðinni að spila á Faktorý í ábyggilega ár. Ætli þetta verði ekki fyrstu og síðustu tónleikarnir okkar á staðnum áður en hann verður rifinn til þess að byggja hótel - sögulegt dæmi," segir Erpur.

„Við hlökkum til og vonumst til að sjá sem flesta. Við vorum líka að gefa út nýtt lag sem er frekar feitt og við munum taka á tónleikunum. Trylla lýðinn!“ segir Erpur, jafnframt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.