Innlent

Stefán Logi kærir í fjórða sinn

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Mynd/365
Stefán Logi Sívarsson hefur kært gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur gegn sér og það í fjórða sinn. Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti í gær kröfu ríkissaksóknara um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir Stefáni Loga og Davíð Frey Magnússyni. Þeir voru úrskurðaðir í fjögurra vikna gæsluvarðhald.

Þeir eru grunaðir um aðild að tveimur alvarlegum líkamsárásum og frelsissviptingu í júlí á þessu ári. Stefán Logi kærði hins vegar til Hæstaréttar sem mun taka málið fyrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×