Tónlist

Slær hárréttu sorglegu tónana

Freyr Bjarnason skrifar
Jóhann Jóhannsson hefur fengið mjög góða dóma fyrir tónlist sína í Hollywood-spennumyndinni Prisoners sem var tekjuhæsta myndin í Bandaríkjunum um þarsíðustu helgi.

„Tónlistin eftir íslenska tónskáldið Jóhann Jóhannsson slær hárréttu sorglegu tónana,“ segir í dómi kvikmyndablaðsins fræga Variety. Gagnrýnandi Associated Press er einnig hrifinn: „Tónlistin eftir Jóhann Jóhannsson lætur þig skjálfa. Reyndu bara að ná henni út úr höfðinu á þér þegar þú yfirgefur bíóið.“

Í dómi Filmmusicmag.com segir: „Tónlistin við Prisoners er ein sú áhugaverðasta síðan hin snilldarlega skrítna tónlist við There Will Be Blood eftir Jonny Greenwood kom út.“

Jóhann samdi tónlistina í Kaupmannahöfn þar sem hann býr. Hún var tekin upp í London, Berlín og París. Jóhann vann m.a. með Hildi Guðnadóttur sem spilaði á selló, Norðmanninum Erik Skodvin sem sá um rafhljóð og Thomas Bloch sem spilaði á glerhljóðfæri sem kallast cristal baschet. Einnig spilaði Bloch á ondes Martenot, sem er franskt rafhljóðfæri frá 1930.

Jóhann var viðstaddur frumsýningar Prisoners í Toronto og Los Angeles, þar sem hann hélt einnig tónleika. Með aðalhlutverk í myndinni fara Hugh Jackman og Jake Gyllenhaal. Hún verður frumsýnd hér á landi í dag.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.