Lífið

Búist við metskráningu í Meistaramánuð

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Jökull, Þorsteinn Kári og Magnús Berg vinna standa á bakvið Meistaramánuðinn í ár.
Jökull, Þorsteinn Kári og Magnús Berg vinna standa á bakvið Meistaramánuðinn í ár. Mynd/Vísir
Meistaramánuðurinn 2013 verður að öllum líkindum stærri en nokkru sinni fyrr í ár. Meistaramánuður er árlegur viðburður þar sem þátttakendur reyna eftir fremsta megni að vakna fyrr, neyta ekki áfengis, hreyfa sig vel, borða hollari mat og njóta lífsins betur en aðra daga. Mennirnir á bakvið Meistaramánuðinn eru þeir Magnús Berg Magnússon, Þorsteinn Kári Jónsson og Jökull Sólberg Auðunsson.

„Við opnuðum fyrir skráningu á mánudag og nú þegar eru um 1000 manns búnir að skrá sig,“ segir Þorsteinn Kári. „Við vorum bara tveir þegar við Magnús fórum af stað árið 2008 þannig að þetta hefur heldur betur vaxið á síðustu árum. Í fyrra voru 5000 manns sem tóku þátt og við stefnum að því að gera enn betur í ár.“

Allir geta tekið þátt og er eina skilyrðið að fólk sé tilbúið að skora sjálft sig á hólm. Fólk setur sjálft reglurnar í sínum Meistaramánuði og geta markmiðin eða áskoranirnar verið gríðarlega fjölbreyttar. Á meðan sumir leggja mikið á sig í líkamsræktinni og mataræðinu hafa aðrir meðal annars málað eina mynd á dag, gert góðverk, reynt að ná tökum á fjármálunum eða heimsótt fjölskyldu og ættingja oftar.

Hægt er að skrá sig til leiks í Meistaramánuðinum á heimasíðu mánaðarins. Jafnframt verður mánuðurinn sýnilegur á samfélagsmiðlunum. „Við verðum með mikinn og öflugan stuðning við þátttakendur á Facebook síðunni, Twitter og fleiri miðlum. Á næstu dögum munum við svo kynna nýjung sem við erum gríðarlega spenntir fyrir. Það verður að koma í ljós síðar hvað það verður en við lofum að það á eftir að vekja mikla athygli,“ segir Magnús Berg. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu mánaðarins.

www.meistaramanudur.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.